Umsögn BSRB um drög að frumvarpi til laga um brottfall laga um SL lífeyrissjóð, nr. 155/1998, mál nr. S-185/2026
Í samráðsgátt liggja fyrir drög að frumvarpi um að fella úr gildi lög um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda (SL lífeyrissjóð) þannig að hægt sé að sameina hann Almenna Lífsverk þar sem tæplega helmingur iðgjaldsins rennur í séreign. Það er í andstöðu við þá stefnu sem mörkuð hefur verið á milli aðila vinnumarkaðarins um að ein meginstoð lífeyriskerfisins byggi á samtryggingu. Íslenska lífeyriskerfið byggir á skylduaðild, sjóðssöfnun og samtryggingu og hefur sjálfbærni að leiðarljósi. Með samningum aðila vinnumarkaðarins um iðgjöld og fyrirkomulag réttindamyndunar hefur markmiðið verið að tryggja launafólki ævilanga afkomu og sameiginlega tryggingavernd án þess að skapa óhóflega byrði á ríkissjóð eða komandi kynslóðir.
Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda hefur mikilvægu hlutverki að gegna í íslenska lífeyrissjóðakerfinu. Sjóðnum er lögum samkvæmt ætlað að taka við og innheimta iðgjöld þeirra sem ekki hafa fullnægt skyldutryggingu sinni hjá öðrum lífeyrissjóði eða þegar ekki liggur fyrir til hvaða sjóðs iðgjald eigi að renna. Sjóðurinn tryggir þannig að greitt sé af öllum launum í skyldutrygginu.
Með frumvarpinu er verið að grafa undan þeirri tryggingavernd sem samtryggingarþáttur lífeyriskerfisins tryggir launafólki og færa stærri hluta skyldubundins lífeyrissparnaðar úr samtryggingu yfir í einstaklingsbundna séreign. BSRB telur þessa breytingu grafa undan meginstoð íslenska lífeyriskerfisins og marka stefnubreytingu í lífeyrismálum sem veikir tryggingavernd og getur haft afdrifaríkar þjóðhagslegar afleiðingar til lengri tíma.
BSRB er alfarið á móti frumvarpi þessu og því að SL lífeyrissjóður verði sameinaður Almenna Lífsverk.