Umsögn BSRB um drög að reglugerð um framfærslu vegna umsókna um dvalarleyfi og íslenskan ríkisborgararétt
Í samráðsgátt liggja fyrir drög að reglugerð um skilyrði til framfærslu vegna umsókna um dvalarleyfi og íslenskan ríkisborgararétt. BSRB vekur athygli á því að stjórnvöld setja fram skilyrði um framfærslu sem eru hærri en lágmarkstaxtar fullvinnandi í kjarasamningum á íslenskum vinnumarkaði og það umtalsvert hærri í tilfelli umsækjanda með börn eða aðra fjölskyldumeðlimi á sínu framfæri.
Lögð er fram reikniregla þar sem upphæð framfærsluskilyrðis er meðaltal þriggja viðmiða; frítekjumark húsnæðisbóta, tekjumark skerðingar barnabóta og örorkulífeyrir með heimilisuppbót. Ekki er ljóst í drögum að reglugerð hvers vegna þessi viðmið eru valin né hvers vegna meðaltal þeirra teljist heppileg reikniregla fyrir framfærsluskilyrði. Þróun þessara viðmiða er ákvörðuð á pólitískum vettvangi og munu breytingar á þeim því, ef úr verður, hreyfa við skilyrðum um framfærslu í málaflokknum og þau því breytileg eftir pólitísku landslagi hverju sinni.
Sambúðarmökum er gert að sýna fram á sjálfstæða framfærslu samkvæmt sömu reiknireglu og gildir um einstaklinga. Mótsagnarkennt er að í viðmiðunarkerfunum; húsnæðisbóta, barnabóta og örorkulífeyriskerfinu hefur sambúðarmaki áhrif á bótarétt. Skerðing bóta hefur svo aftur áhrif á stöðu tekjulægri sambúðarmakans til að sýna fram á sjálfstæða framfærslu.
BSRB hvetur stjórnvöld til að endurskoða skilyrði um framfærslu sem sett eru fram í drögum að reglugerð og gæta að því að ekki séu gerðar ríkari kröfur til umsækjenda um dvalarleyfi og íslenskan ríkisborgararétt en annarra.
Fyrir hönd BSRB
Jana Eir Víglundsdóttir hagfræðingur