Umsögn BSRB um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026-2029, 597. mál
BSRB fagnar því að fram sé komin ný framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda. BSRB hefur síðustu ár lagt aukna áherslu á málefni innflytjenda og fólks af erlendum uppruna og mikilvægi þess að hafa inngildingu að leiðarljósi í allri stefnumótun stjórnvalda. Að undanförnu hefur orðið vart við aukna skautun í samfélagslegri umræðu sem hefur ýtt undir aðgreiningu og andúð í garð innflytjenda. Það er þvert á grunngildi okkar um jöfnuð, samstöðu og mennsku sem leggja þarf áherslu á í allri stefnumótun og samfélagslegri umræðu. Kynt hefur verið undir þær skoðanir að fólk af erlendum uppruna séu byrði á samfélaginu þegar staðreyndin er sú að þau stuðla að þeim hagvexti sem við búum við og gera samfélagið okkar fjölbreyttara og betra. Stjórnvöld bera mikla ábyrgð í því að vinna gegn fordómum í garð innflytjenda og þurfa að standa undir henni.
BSRB tók þátt í gerð grænbókar og hvítbókar um málefni innflytjenda, sem fór fram í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu á árunum 2023-2024, sem áætlunin byggir að miklu leyti á. Sú vinna skilaði góðum upplýsingum um stöðu mála hér á landi, m.a. í gegnum greiningu OECD og samráðsfundi með innflytjendum og flóttafólki. Mikilvægt er að líta áfram til þeirra greininga á næstu árum og samhliða bæta þekkingu og upplýsingasöfnun til að byggja undir stefnumótun til framtíðar.
BSRB vill koma á framfæri eftirfarandi athugasemdum við framkvæmdaáætlunina. Þá tekur BSRB jafnframt undir sjónarmið sem koma fram í umsögn ASÍ, m.a. um mikilvægi þess að fyrirhuguð fjármögnun sé í samræmi við umfang og þörf og verði tryggð í fjármálaáætlun og fjárlögum komandi ára.
Aðgerðir um íslenskunám og notkun tungumálsins í daglegu lífi
Drög að þingsályktun voru birt í samráðsgátt stjórnvalda 10. febrúar 2026 og í þeim drögum var mun fastar að orði kveðið varðandi það að tryggja rétt innflytjenda til íslenskukennslu. Í lið 1.1. a. sagði þar: „Réttur innflytjenda til íslenskunáms verði tryggður og ábyrgð þeirra til að ljúka íslenskunámskeiðum skýrð þar sem dregið verði úr kostnaðarþátttöku þeirra.“ Þessi orð hafa nú verið tekin út og BSRB leggur því til að Alþingi kveði skýrt á um rétt innflytjenda til íslenskukennslu, lík og gert var í drögum á fyrri stigum og stefni að lögfestingu réttar til íslenskunáms. Í greinargerð með þeirri tillögu sem liggur fyrir Alþingi er þessi breyting ekki útskýrð í kafla sem fjallar um samráð.
Í greiningu OECD sem vísað var til að ofan kom fram að færni innflytjenda hér á landi í íslensku sé langt undir meðaltali OECD ríkja og sláandi var að sjá samanburð á fjárframlögum hins opinbera til tungumálakennslu á Íslandi samanborið við hin Norðurlöndin. Því er jákvætt að sjá að nú sé sett fjármagn í íslenskukennslu bæði fullorðinna og barna en líklega er ekki nægilega langt gengið. Kennsla í íslensku sem annars tungumáls hefur verið vanfjármögnuð árum saman og á sama tíma hefur innflytjendum fjölgað umtalsvert hér á landi. Íslensk stjórnvöld ættu að stefna að því að jafna stöðu Íslands á við Norðurlöndin. Einnig þarf að tryggja að kennaramenntun í íslensku sem öðru máli verði efld, en ekki er fjallað um það í áætluninni.
Varða, rannsóknarstofnun vinnumarkaðarins, hefur um árabil lagt fyrir könnun um stöðu launafólks þar sem svarhlutfall meðal innflytjenda hefur verið hátt. Þar hefur komið fram að helsta ástæða þess að innflytjendur hafi ekki stundað nám í íslensku er tímaskortur. BSRB hefur lagt ríka áherslu á að vinnustaðir bjóði sínu starfsfólki upp á íslenskunám á vinnutíma og þeim að kostnaðarlausu. Í greinargerð er fjallað um að styðja sérstaklega samstarf við fyrirtæki um íslenskukennslu á vinnutíma og/eða samhliða starfi. Þetta er lykilatriði og þarf að gera í góðu samstarfi við aðila vinnumarkaðarins. Jákvætt er að sérstaklega sé fjallað um vaktavinnufólk og fólk með börn. Þróa þarf raunhæfar lausnir sem henta þessum hópum og leita leiða til að tryggja íslenskukennslu á vinnutíma, m.a. með því að styrkja lagaramma líkt og fjallað er um í greinargerð.
Aðgerðir um mat á námi og þátttöku á vinnumarkaði
Það liggur fyrir að stór hluti innflytjenda sinnir ekki starfi sem hæfir menntun þeirra og hærra hlutfall en þekkist í öðrum OECD ríkjum. Þetta hefur verið til umræðu lengi en staðan ekki breyst mikið. Í aðgerð 2.1 er lagt til að meta hvernig þróa megi áfram sameiginlega matsgátt fyrir menntun og kanna fýsileika þess að setja á laggirnar formlegt samstarf aðila vinnumarkaðarins sem miði að því að auka tækifæri innflytjenda á störfum í samræmi við menntun. Fjármagn sem fylgir þessari aðgerð er 3 milljónir kr. BSRB telur að hér þurfi að ganga lengra og stíga ákveðnari skref. ASÍ bendir á í sinni umsögn að mikilvægt sé að fylgja þessum aðgerðum eftir með mati á árangri og tekur BSRB undir þær athugasemdir.
Þá er fjallað um raunfærnimat og áframhaldandi þróun þess. Í tengslum við þá aðgerð vill BSRB koma því á framfæri að þau kerfi sem eru til staðar eru takmörkuð að því leyti að þau ná ekki utan um allar greinar, svo sem mikilvægar greinar í heilbrigðis- og félagsþjónustu. Þetta þarf að hafa í huga og leggja sérstaka áherslu á að aðgangur að raunfærnimati henti fjölbreyttum hópi innflytjenda. Hér mætti einnig leggja áherslu á aðgengi að náms- og starfsráðgjöf, en framhaldsfræðsluaðilar sinna því hlutverki.
Í aðgerð 2.4 er fjallað um jafnræði í aðgengi að opinberum störfum en ekki eru til aðgengilegar grunnupplýsingar um innflytjendur sem starfa hjá hinu opinbera. Úr þessu þarf að bæta og jafnframt hafa öfluga fræðslu fyrir stjórnendur hjá hinu opinbera. BSRB og aðildarfélög okkar búa yfir ýmsum upplýsingum sem gætu nýst við þessa vinnu og við lýsum yfir vilja til samstarfs um þessi verkefni.
Aðgerðir um tölfræði og rannsóknir
Í þessum kafla er fjallað um að bæta tölfræði um innflytjendur og efla miðlun gagna. Í aðgerð 4.1 er jafnframt fjallað um að greina stöðu innflytjenda sérstaklega í reglubundnum lífskjararannsóknum Hagstofunnar. Mjög jákvætt er að leggja eigi fjármagn í þessar aðgerðir. Til þess að stefnumótun verði markviss verður hún að byggja á áreiðanlegum gögnum sem eru aðgengileg og uppfærð reglulega. Hér vill BSRB aftur benda á Vörðu, rannsóknarstofnun vinnumarkaðarins, sem býr yfir afar góðum upplýsingum um stöðu innflytjenda á vinnumarkaði og hefur gert rannsóknir á þeim hópi um árabil. Þá er mikilvægt að kanna afstöðu almennings til innflytjenda, en líkt og áður segir hefur orðið vart við bakslag í viðhorfum almennings hér á landi og mikilvægt að sporna við því. Þá fagnar BSRB því að gera eigi sérstaka rannsókn á líðan og samfélagslegri þátttöku innflytjenda og ná fram sjónarmiðum þeirra sem nýst geta við stefnumótun.