Umsögn BSRB um frumvarp til breytingar á lögum um almennar íbúðir, nr. 52/2016 (hækkun stofnframlaga ríkisins o.fl.), 510. mál

BSRB hefur fengið til umsagnar ofangreint frumvarp þar sem lagðar eru til breytingar á lögum um almennar íbúðir nr. 52/2016. Markmið frumvarpsins er samkvæmt greinargerð að efla almenna íbúðakerfið með hærri stofnframlögum ríkisins til að bregðast við háum fjármagnskostnaði stofnframlagshafa við núverandi efnahagsaðstæður og styrkja þar með grundvöll fyrir uppbyggingu leiguhúsnæðis með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði. Frumvarpinu er einnig ætlað að einfalda skilyrði stofnframlaga sem veitt eru til kaupa á almennum íbúðum, en húsnæðismálaráðherra hefur boðað heildarendurskoðun laganna á næsta löggjafarþingi.

Tilgangur frumvarpsins er þannig að bregðast við erfiðu fjármögnunarumhverfi óhagnaðardrifinna húsnæðisfélaga vegna hás vaxtastigs og hækkun byggingarkostnaðar sem hefur leitt til þess að eftirspurn eftir stofnframlögum hefur minnkað undanfarin ár þrátt fyrir mikla þörf fyrir hagkvæmt húsnæði. Til að bregðast við þeim áskorunum sem stofnframlagshafar hafa staðið frammi fyrir er lagt til að stofnframlög verði hækkuð til að mæta háum fjármagnskostnaði. Þannig er lagt til að almennt stofnframlag ríkisins geti numið allt að 23% af stofnvirði íbúðar, í stað 18% eins og nú er.

BSRB fagnar breytingunni og telur hana nauðsynlega, en tekur undir athugasemdir Bjargs íbúðafélags sem benti á orðalag frumvarpsins. BSRB leggur því til að orðalagið verði á þá leið að framlögin verði á bilinu 18% til 23% í stað ,,allt að 23%“, enda gætu stofnframlög að öðrum kosti verið lægri en 18% sem yrði í andstöðu við markmið frumvarpsins.