Umsögn BSRB um frumvarp til laga um breytingu á lögum um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð, 133. mál

BSRB hefur tekið til umsagnar frumvarp um breytingu á lögum um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð þar sem lagt er til að 3. mgr. 1. gr. verði felld brott og stofnuninni þar með ekki lengur skylt að starfrækja sjálfstæða rannsóknareiningu sem fylgist með afkomu þjóðarbúsins, semur þjóðhagsspár og áætlanir og birtir opinberlega.

Stefnumörkun í opinberum fjármálum, þar á meðal fjármálaáætlun 2027-2031 og frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027, byggir nú í fyrsta sinn á þjóðhagsspá Seðlabanka Íslands. Hingað til hefur stefnumörkun í opinberum fjármálum verið byggð á sjálfstæðri hagspá; undanfarin ár á óháðri hagspá rannsóknareiningar Hagstofu Íslands, áður á hagspá efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins og þar áður á hagspá Þjóðhagstofnunnar.

Í greinargerð er fullyrt að það séu ótvíræðir kostir að tveir armar hagstjórnarinnar byggi á sömu hagspá og að færa megi sterk rök fyrir að það fyrirkomulag styrki hagstjórn. Þessi rök koma hins vegar ekki fram í greinargerðinni og kallar BSRB eftir frekari rökstuðningi. Hagspá Seðlabanka Íslands er samin til að styðja og undirbyggja ákvarðanatöku um peningastefnu og er í eðli sínu ekki hlutlaus gagnvart henni. Þá er fjallað um í greinargerðinni að fjöldi aðila birti reglulega hagspár fyrir Íslands. Raunin er hins vegar sú að í dag er einn opinber aðili sem birtir hagspá fyrir Ísland, Seðlabanki Íslands, og þar er um að ræða spá til þriggja ára en fjármálaáætlun nær til fimm ára. Þar að auki birta viðskiptabankarnir og Alþýðusamband Íslands hagspár en þær spár geta ekki kallast óháðar. BSRB telur mikilvægt að stefnumörkun í opinberum fjármálum byggi á sjálfstæðri þjóðhagsspá, hvar svo sem hún er unnin.

BSRB fagnar áformum í frumvarpi um að styrkja kjarnastarfsemi Hagstofu Íslands og þar með efla grunninn sem undirbyggir alla hagstjórn landsins.

 

Fyrir hönd BSRB

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir

framkvæmdastjóri