Umsögn BSRB um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2027, 2. mál.

BSRB hefur tekið til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2027 og þakkar fyrir að fá tækifæri til gera grein fyrir sjónarmiðum BSRB. Að þessu sinni veitir BSRB umsögn um breytingu á krónutölugjöldum, barnabótum og samspili örorkugreiðslna almannatrygginga og lífeyrissjóða

 

Gjaldahækkanir ýta undir verðbólguvæntingar

Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir 5,2% hækkun krónutölugjalda sem er í samræmi við verðlagsforsendur frumvarpsins og áætlaða árshækkun vísitölu neysluverðs á árinu 2026. Almennt gerir BSRB ekki athugasemd við að tekjur ríkissjóðs haldi verðgildi sínu milli ára en mikilvægt er að líta til áhrifa hækkana á verðbólgu og verðbólguvæntingar. Verðbólga hefur reynst þrálát undanfarið og varhugavert er að ríkið ýti undir verðbólguvæntingar með umtalsverðum krónutöluhækkunum á þessum tímapunkti. Samkvæmt gögnum fjárlagafrumvarpsins er áætlað að bein áhrif hækkunar krónutölugjalda á vísitölu neysluverðs séu 0,28%. Í greinargerð frumvarpsins er lagt að því líkum að gjaldskráhækkanir muni leiða samdráttar í eftirpurn en BSRB telur líkelgar að neikvæð áhrif á verðbólgu og verðbólguvæntingar vegi þyngra. Gjaldskrárhækkanir bitna hlutfallslega meira á tekjulágum.

Jafnframt er lagt til að kílómetragjald hækki meira en önnur krónutölugjöld og umfram verðlagsforsendur frumvarpsins og á sú umframhækkun að skila ríkissjóði 4 ma. kr. Um er að ræða 15,8% hækkun kílómetragjalds. Kílómetragjald á ökutæki fyrir allar tengdir bíla var innleitt áramót og því er um að ræða umtalsverða hækkun gjalds sem var nýlega innleitt. BSRB bendir á að hækkunin geti hafi mismunandi áhrif á einstaklinga eftir búsetu og efnahag. Víða um land ferðast fólk langar vegalengdir til vinnu og eftir þjónustu og eru almenningssamgöngur takmarkaðar. Tekjulægri hópar borga hlutfallslega meira fyrir samgöngur en tekjuhærri hópar og munu finna meira fyrir hækkun kílómetragjaldsins.

Þá þarf að setja hækkun kílómetragjalds í samhengi við aukna áherslu á veggjöld og að þá sé gjaldtaka orðin tvíþætt. Aukin áhersla er á fjármögnun samgöngumannvirkja í gegnum innviðafélagið Göng og brú hf. Með þeirri nálgun færist fjármögnun innviða í auknum mæli frá sameiginlegri skattfjármögnun yfir í beina gjaldtöku af notendum vega. Veggjöld eru föst upphæð og verða því stærri hluti af ráðstöfunartekjum lág- og meðaltekjufólks. Verið er að breyta gjaldtöku skref fyrir skref án þess að heildarmynd liggi fyrir. BSRB er alfarið á móti þeirri nálgun þegar um svo ríka hagsmuni almennings er að ræða.

 

Barnabætur

Fjárheimildir til barnabóta í fjárlagafrumvarpi næsta árs er óbreytt milli ára og hefur ekki hækkað síðan 2025. Þetta verður til þess að barnabætur lækka að raunvirði milli ára bæði á yfirstandandi ári og því næsta auk þess sem óuppfærð tekjuskerðingarmörk gera það að verkum að færri foreldrar fá barnabætur. Uppfæra þarf fjárhæðir barnabóta og tekjuskerðingarmörk þannig að barnabætur haldi raungildi sínu miðað við árið 2025 að lágmarki. Stefna BSRB er að barnabætur séu óskertar upp að meðaltekjum.

 

Samspil örorkugreiðslna almannatrygginga og lífeyrissjóða

Í 37. gr. er ákvæði 2. tl. í bráðabirgðaákvæði III í lögum nr. 113/1990 um tryggingagjald framlengt til ársloka 2027. Ákvæðið varðar jöfnun á örorkubyrði lífeyrissjóða. Breytingar voru gerðar á ákvæðinu í árslok 2025 án samráðs við heildarsamtök launafólks á opinberum vinnumarkaði og lífeyrissjóði opinberra starfsmanna. Í ákvæðinu segir að framlagið eigi eingöngu að renna til lífeyrissjóða með þyngstu örorkubyrðina en þar er átt við lífeyrissjóði þar sem hlutfall örorkuskuldbindingar af framtíðarskuldbindingu er þremur prósentustigum hærra en meðaltal örorkuskuldbindingar sjóðanna. BSRB telur hér um grófa mismunun að ræða gagnvart sjóðsfélögum í Brú lífeyrissjóði sem er lífeyrissjóður starfsfólks sveitarfélaganna. Örorkubyrði sjóðsins er há en fellur rétt undir þau mörk sem tilgreind eru í ákvæðinu.