Umsögn BSRB um frumvarp til laga um brottfall laga um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda, nr. 155/1998, mál nr. 292.

BSRB skilaði umsögn í drög að frumvarpinu í samráðsgátt stjórnvalda þann 8. október sl. og lagðist gegn breytingunni. Frumvarpið er nú lagt fyrir Alþingi óbreytt og BSRB skila því nær samhljóða umsögn auk þess sem brugðist er við viðbrögð fjármálaráðuneytisins við gagnrýni BSRB.

Í frumvarpinu er lagt að að lög um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda (SL lífeyrissjóð) falli brott þannig að hægt sé að sameina hann lífeyrissjóðnum Almenna Lífsverk þar sem tæplega helmingur iðgjaldsins rennur í séreign. Það er í andstöðu við þá stefnu sem mörkuð hefur verið á milli aðila vinnumarkaðarins um að ein meginstoð lífeyriskerfisins byggi á samtryggingu. Íslenska lífeyriskerfið byggir á skylduaðild, sjóðssöfnun og samtryggingu og hefur sjálfbærni að leiðarljósi. Með samningum aðila vinnumarkaðarins um iðgjöld og fyrirkomulag réttindamyndunar hefur markmiðið verið að tryggja launafólki ævilanga afkomu og sameiginlega tryggingavernd án þess að leggja óhóflega byrði á ríkissjóð eða komandi kynslóðir.

Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda hefur mikilvægu hlutverki að gegna í íslenska lífeyrissjóðakerfinu. Sjóðnum er lögum samkvæmt ætlað að taka við og innheimta iðgjöld þeirra sem ekki hafa fullnægt skyldutryggingu sinni hjá öðrum lífeyrissjóði eða þegar ekki liggur fyrir til hvaða sjóðs iðgjald eigi að renna. Sjóðurinn tryggir þannig að greitt sé af öllum launum í skyldutrygginu.

Með frumvarpinu er verið að grafa undan þeirri tryggingavernd sem samtryggingarþáttur lífeyriskerfisins tryggir launafólki og færa stærri hluta skyldubundins lífeyrissparnaðar úr samtryggingu yfir í einstaklingsbundna séreign. BSRB telur þessa breytingu grafa undan meginstoð íslenska lífeyriskerfisins og marka stefnubreytingu í lífeyrismálum sem veikir tryggingavernd og getur haft afdrifaríkar þjóðhagslegar afleiðingar til lengri tíma.

Í greinagerð með frumvarpinu er brugðist við gagnrýni BSRB og ASÍ við málið þegar það var lagt fram í samráðsgátt. Bæði bandalögin hafa lýst yfir áhyggjum af þeirri stefnubreytingu fyrir lífeyriskerfið sem frumvarpið felur í sér. Fjármálaráðuneytið bendir á að um aðeins lítinn hluta kerfisins sé að ræða. BSRB er óssamála því að sameining tveggja ofangreindra sjóða feli ekki í sér stefnubreytingu. Hér er verið að stíga enn eitt skrefið í þá átt að draga úr samtrygginarhlutverki lífeyrissjóðanna en flestar breytingar sem gerðar hafa verið á kerfinu undanfarin ár hafa verið í þá átt. Þó skrefin séu misstór þá stefna þau öll í sömu átt: Að veikja samtrygginguna á kostnað séreignar.

Í greinargerðinni kemur einnig fram að ekki sé verið að draga úr lögbundnu hlutverki Söfnunarsjóðsins, það muni flytjast yfir til sameinaðs sjóðs. BSRB telur þetta óheppilegt fyrirkomulag. Eðlilegra væri að fela sjóði sem starfar í samræmi við lífeyrisskipulag sjóða sem starfa á samningssviðum aðila vinnumarkaðarins.

BSRB er alfarið á móti frumvarpi þessu og því að SL lífeyrissjóður verði sameinaður Almenna Lífsverk.

 

Fyrir hönd BSRB

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir

framkvæmdastjóri