Umsögn BSRB um frumvarp til laga um Stofnun atvinnuveganna, 568. mál
BSRB hefur fengið til umsagnar ofangreint frumvarp sem felur í sér að sett verði á fót ný stofnun sem sameini Matvælastofnun, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs í eina stofnun. Stofnuninni er m.a. ætla að sinna verkefnum á sviði sjávarútvegsmála, lagareldis, lax- og silungsveiði, fiskræktar, matvælamála, dýravelferðar og heilbrigði dýra og plantna. Hlutverk og verkefni nýrrar stofnunar verða að mestu leyti hin sömu og Fiskistofu, Matvælastofnun og Verðlagsstofu skiptaverðs eru falin samkvæmt gildandi lögum. Þá er jafnframt lagt til að tiltekin verkefni sem hafa verið á höndum sveitarfélaga verði færð til ríkisins.
Félagsfólk aðildarfélaga BSRB starfar hjá þeim stofnunum sem munu verða fyrir áhrifum af sameiningunni og leggur BSRB ríka áherslu á að gætt verði að réttindum alls starfsfólks. Í bráðabirgðaákvæði frumvarpsins segir að starfsfólk umræddra stofnana sem er í starfi við gildistöku laganna, sinnir þeim verkefnum sem færast til nýrrar stofnunar samkvæmt lögum og uppfyllir hæfisskilyrði og önnur lögbundin skilyrði til starfsins, skuli eiga forgangsrétt til starfa hjá Stofnun atvinnuveganna þegar hún tekur til starfa. Einnig er fjallað um réttarstöðu starfsfólks sveitarfélaga sem færist yfir til stofnunarinnar.
BSRB tekur undir þær athugasemdir sem koma fram í umsögn Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu auk annarra stéttarfélaga starfsfólks. Það er mikilvægt að gætt sé að réttindum starfsfólks og þá sérstaklega að tekið verði fram í frumvarpinu að öll áunnin réttindi haldi sér, svo sem áunninn orlofsréttur, réttindi tengd starfsaldri og önnur kjör sem byggja á samfellu í starfi. BSRB hvetur nefndina til þess að taka þau sjónarmið sem Sameyki nefnir í umsögn sinni til skoðunar og að gerð verði tillaga um lagfæringar á efni frumvarpsins í áliti nefndarinnar.
Fyrir hönd BSRB
Hrannar Már Gunnarsson
lögfræðingur