Umsögn BSRB um tillögu til þingsályktunar um endurskoðun á tímabili viðmiðunargreiðslna fæðingar- og foreldraorlofs, 73. mál

BSRB hefur tekið til umsagnar tillögu til þingsályktunar um endurskoðun á tímabili viðmiðunargreiðslna fæðingar- og foreldraorlofs. Tillagan gengur út á að fela félags- og húsnæðismálaráðherra að endurskoða ákvæði um viðmiðunartímabil fæðingarorlofsgreiðslna, sem eru í V. kafla laga um fæðingar- og foreldraorlof nr. 144/2020.

BSRB styður tillöguna og að félags- og húsnæðismálaráðherra verði falið verkefnið. Bandalagið leggur mikla áherslu á að allar breytingar sem gerðar verði á lögum um fæðingar- og foreldraorlof séu gerðar í nánu samstarfi samtök launafólks og atvinnurekendur líkt og gert hefur verið hingað til í starfshópum á vegum ráðuneytisins.

Tveir hópar eru nefndir í tillögunni, foreldrar sem eignast börn með stuttu millibili og þau sem eru að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði. Fjallað er um misræmi milli Íslands og Norðurlandanna og það má taka undir að viðmiðunartímabilið hér getur náð ansi langt aftur í tímann sem getur haft neikvæð áhrif á greiðslur til foreldra í fæðingarorlofi. Hér er tímabilið langt og því lýkur 6 mánuðum fyrir fæðingu barns og jafnvel fyrr í tilvikum sjálfstætt starfandi. Að auki miðast það ekki við upphaf orlofstöku, sem getur haft áhrif. BSRB telur æskilegt að málið sé skoðað heildstætt og jafnræði sé tryggt. Ef gera á undantekningar fyrir einstaka hópa þurfa þær að vera vel skilgreindar og rökstuddar.

Þá vill BSRB benda á að vandi foreldra sem eiga börn með stuttu millibili er fyrst og fremst tilkominn vegna þess að umönnunarbilið hefur ekki verið brúað sem leiðir til þess að foreldrar, einkum mæður, lengja fæðingarorlof sitt til þess að brúa bilið. Í könnun Vörðu, rannsóknarstofnunar vinnumarkaðsins, um samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs kemur fram að um 20% mæðra lengir fæðingarorlof sitt.[1] Það leiðir til þess að þær verða tekjulausar um tíma, sem hefur áhrif á greiðslur fari þær aftur í fæðingarorlof eftir skamman tíma. Aðgerðarhópur um brúun umönnunarbilsins, sem starfaði á vegum Forsætisráðuneytisins, skilaði skýrslu í desember 2025[2] þar sem lagðar eru til tímasettar aðgerðir til þess að brúa bilið. Meðal þeirra var að frumvarp um að lögfesta rétt barna til leikskóladvalar að loknu fæðingarorlofi yrði samþykkt á árinu 2026 og sá réttur yrði innleiddur fyrir öll börn á árunum 2027-2030. Að auki voru lagðar til aðrar aðgerðir sem áttu að koma til framkvæmda 2026, m.a. um að móta heildstæða stefnu hins opinbera um stuðning og þjónustu við barnafjölskyldur og lögfesta ábyrgð sveitarfélaga á leikskóla samhliða viðræðum ríkis og sveitarfélaga um uppbyggingu, kostnaðarskiptingu og tekjustofna. Ekkert þessara verkefna er farið af stað og BSRB kallar eftir því að stjórnvöld standi við gefin loforð og hefji vinnuna tafarlaust.

 

Greiðslur í fæðingarorlofi

Verði tillagan samþykkt leggur BSRB til að fleiri atriði í V. kafla laganna verði tekin til skoðunar. Þar ber helst að nefna að tryggja þarf að greiðslur sem samsvari lágmarkslaunum verði óskertar. Þetta hefur verið krafa BSRB í fleiri ár en nú er orðið brýnt að hún nái fram að ganga. Í ársskýrslum Fæðingarorlofssjóðs síðustu ár kemur fram að mæður í lægsta tekjufjórðungi taka fæsta orlofsdaga og hefur munur á milli mæðra í lægsta fjórðungi og annarra aukist með tilkomu laganna 2020 líkt og sjá má á myndinni hér að neðan. Það bendir til þess að sú tekjuskerðing sem konur á lægri launum verða fyrir sé of mikil til þess að þær geti nýtt fæðingarorlof til jafns við aðrar konur. Staða mæðra er öfug við stöðu feðra, þar sem feður í hæsta tekjufjórðungi nýta fæsta daga. Sú staðreynd tengist þaki á greiðslum í fæðingarorlofi, sem hefur verið að hækka síðustu ár. Til framtíðar þarf að tryggja að þakið taki reglulegum breytingum til samræmis við launaþróun. Jöfn þátttaka beggja foreldra í fæðingarorlofi er lykilatriði þegar kemur að jafnrétti á vinnumarkaði og í ólaunuðum störfum og tryggja þarf að fæðingarorlofskerfið stuðli að jafnri þátttöku foreldra.

Heimild: Ársskýrsla Vinnumálastofnunar vegna Fæðingarorlofssjóðs 2025, bls. 16

 

Framsal og tilfærsla réttinda

Við endurskoðun fæðingarorlofslaganna árið 2020 var bætt inn í 9. gr. heimildum til tilfærslu réttinda milli foreldra í þeim tilvikum þar sem ákveðinn ómöguleiki er á samvistum barns við báða foreldra. Meðal þess sem bætt var við er að Vinnumálastofnun var veitt heimild til að færa rétt forsjárlauss foreldris til forsjárforeldris þegar fyrirséð er að forsjárlaust foreldri muni ekki annast barns sitt á tímabili fæðingarorlofstöku þar sem foreldrið hefur ekki umgengni við barnið, sbr. 8. mgr. 9. gr. Í ákvæðinu er einnig reglugerðarheimild sem snýr að því að kveða nánar á um tilfærslu réttinda í þessum tilvikum. Í Ársskýrslu Fæðingarorlofssjóðs[3] kemur fram að þetta úrræði hefur verið nýtt einu sinni síðan það tók gildi. BSRB leggur því til að skoðað verði hversu margar umsóknir um tilfærslu á grunni þessa ákvæðis hafa verið og hvaða viðmið Vinnumálastofnun hefur notað við mat á umsóknum. Í kjölfarið verði svo sett reglugerð þar sem nánar er kveðið á um tilfærslu réttinda samkvæmt þessu.

 

Fyrir hönd BSRB

Dagný Aradóttir Pind

lögfræðingur

 

 

[1] Samræming fjölskyldu og atvinnulífs. Varða (2023), bls. 34.

[2] Brúum umönnunarbilið. Skýrsla og tillögur aðgerðarhóps. Forsætisráðuneytið (2025).

[3] Ársskýrsla Vinnumálastofnunar vegna Fæðingarorlofssjóðs 2025, bls. 18.