Umsögn um frumvarp um jafna meðferð á vinnumarkaði

Umsögn BSRB um frumvarp til laga um jafna meðferð á vinnumarkaði, 435. mál og frumvarp til laga um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna, 436. mál. 

Reykjavík, 10. maí 2017

 

BSRB hefur fengið til umsagnar frumvarp til laga um jafna meðferð á vinnumarkaði og jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna.

Bandalagið hefur tekið þátt í undirbúningi þessa máls frá 2006 og fagnar framlagningu þess. BSRB hefur í rúmlega áratug lagt mikla áherslu á að svonefndar mismunatilskipanir verði innleiddar með setningu laga um jafna meðferð á vinnumarkaði og jafna meðferð óháð kynþætti eða þjóðernisuppruna sem byggja tilskipunum 2000/78/EB frá 27. nóvember 2000, um almennar reglur um jafna meðferð á vinnumarkaði og í atvinnulífi og tilskipun 2000/43/EB frá 29. júní 2000, um framkvæmd meginreglunnar um jafna meðferð manna án tillits til kynþáttar eða þjóðernis.

Það er löngu tímabært að Ísland leggi áherslu á og tryggi jafnrétti í víðari skilningi en eingöngu kynjajafnrétti og gangi þannig í takt við alþjóðasamfélagið. Meginforsenda þess er að sett verði almenn löggjöf um bann við mismunun á grundvelli fleiri ástæðna en eingöngu kyns. BSRB hvetur Alþingi eindregið til að samþykkja frumvörpin.

 

Fyrir hönd BSRB

Helga Jónsdóttir
framkvæmdastjóri

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?