Engin rök fyrir einkarekstri á sjúkrahóteli

Skoðun

Full ástæða er til að taka undir með forstjóra Landspítalans þegar hann bendir á að affarsælast væri að spítalinn sjái sjálfur um rekstur sjúkrahótels, segir Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB í aðsendri grein sem birtist í Fréttablaðinu í dag.

Í grein sinni fjallar Elín um niðurstöður starfshóps sem skoða átti kosti mismunandi rekstrarforma fyrir sjúkrahótel við Landspítalann. Ýmsar hugmyndir komu fram í hópnum, þar á meðal sú að einkavæða starfsemina með því að fela einkaaðilum að reka sjúkrahótelið. Full ástæða er til að vara við þeim áformum, skrifar Elín Björg.

Lesa má grein Elínar í heild sinni hér að neðan, eða á vef Vísis.

Hagsmunir sjúklinga ráði

Það virðist litlu breyta þó rúmlega 80 prósent þjóðarinnar séu þeirrar skoðunar að heilbrigðiskerfið eigi að vera á forræði hins opinbera, alltaf dúkka af og til upp hugmyndir um að einkavæða hluta þjónustunnar.

Nú hefur heilbrigðisráðherra til meðferðar niðurstöður starfshóps sem skoða átti kosti mismunandi rekstrarforma fyrir sjúkrahótel við Landspítalann. Enn og aftur lýsa talsmenn einkavæðingar í heilbrigðiskerfinu áhuga sínum á því að láta einkaaðilum eftir að reka sjúkrahótelið.

Forstjóri Landspítalans hefur talað hreint út um málið og segir hagsmunum sjúklinga best borgið með því að sjúkrahótelið verði hluti af Landspítalanum. Full ástæða er til að taka undir orð forstjóra Landspítalans.

Rannsóknir Rúnars Vilhjálmssonar prófessors sýna með skýrum hætti að fjórir af hverjum fimm Íslendingum vilja að það sé fyrst og fremst hið opinbera sem reki heilbrigðiskerfið, ekki einkaaðilar. Einkarekstur er þegar allt of algengur í íslensku heilbrigðiskerfi og frekar ætti að leita allra leiða til að draga úr honum heldur en að skoða hvort enn eigi að auka við hann.

Talsmenn einkareksturs eru gjarnan þeirrar skoðunar að einkarekstur eigi ekkert skylt við einkavæðingu, enda vita þeir sem er að stór hluti almennings er andvígur henni.

BSRB skorar á heilbrigðisráðherra

Á málþingi sem BSRB og ASÍ stóðu fyrir nýverið benti Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir stjórnsýslufræðingur á að þó orðið einkarekstur hljómi betur í eyrum sé hann í raun ekkert annað en einkavæðing á þjónustu.

Sigurbjörg benti jafnframt á að einkavæðing á þjónustu í heilbrigðiskerfinu geti takmarkað getu og svigrúm stjórnvalda til að taka stefnumarkandi ákvarðanir um forgangsröðun og skipulag kerfisins í þágu almannahagsmuna. Ríkið hefur hingað til átt erfitt með að tryggja að einkavæðing hafi ekki þessi áhrif og ólíklegt að þau hafi fundið töfralausnina núna.

BSRB skorar á heilbrigðisráðherra að láta ekki undan fagurgala þeirra sem sjá sér hagsmuni í því að hagnast á því að reka þjónustu fyrir sjúklinga. Skynsamlegasti kosturinn er að hafa rekstur sjúkrahótelsins hluta af starfsemi Landspítalans.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?