BSRB gagnrýnir íþyngjandi framfærsluskilyrði vegna dvalarleyfa og ríkisborgararéttar

BSRB gagnrýnir að stjórnvöld hyggist gera meiri kröfur um framfærslu til fólks sem sækir um dvalarleyfi eða íslenskan ríkisborgararétt en sem nemur lágmarkslaunum á íslenskum vinnumarkaði. Bandalagið hvetur stjórnvöld til að endurskoða fyrirhuguð skilyrði og tryggja að þau séu sanngjörn og taki mið af raunverulegum aðstæðum launafólks.

Þetta kemur fram í umsögn BSRB um drög að reglugerð um skilyrði til framfærslu vegna umsókna um dvalarleyfi og íslenskan ríkisborgararétt.

Í umsögninni bendir BSRB á að fyrirhuguð framfærsluviðmið séu hærri en lágmarkstaxtar fyrir fullt starf samkvæmt kjarasamningum á íslenskum vinnumarkaði. Munurinn sé enn meiri þegar umsækjendur eru með börn eða aðra fjölskyldumeðlimi á framfæri sínu.

 

Óljós rök fyrir framfærsluviðmiðum

Samkvæmt reglugerðardrögunum á að reikna framfærsluskilyrði út frá meðaltali þriggja viðmiða: frítekjumarks húsnæðisbóta, tekjumarks vegna skerðingar barnabóta og örorkulífeyris með heimilisuppbót.

BSRB gagnrýnir að ekki sé útskýrt hvers vegna þessi tilteknu viðmið hafi orðið fyrir valinu eða hvers vegna meðaltal þeirra sé talið heppilegur grundvöllur framfærsluskilyrða.

Bandalagið bendir jafnframt á að viðmiðin ráðist af pólitískum ákvörðunum og geti því breyst eftir áherslum stjórnvalda hverju sinni. Með því verði framfærsluskilyrði fyrir umsækjendur um dvalarleyfi og ríkisborgararétt breytileg eftir pólitísku landslagi hverju sinni.

 

Mótsagnir í kröfum til sambúðarfólks

BSRB gerir einnig athugasemdir við kröfur um sjálfstæða framfærslu sambúðarmaka. Samkvæmt drögunum þurfa sambúðarmakar að sýna fram á sjálfstæða framfærslu samkvæmt sömu reiknireglu og einstaklingar.

Þetta telur bandalagið mótsagnakennt þar sem tekjur sambúðarmaka hafa áhrif á rétt til húsnæðisbóta, barnabóta og örorkulífeyris. Skerðing bóta vegna sambúðar getur þannig gert tekjulægri sambúðarmakanum erfiðara fyrir að uppfylla kröfur um sjálfstæða framfærslu.

 

Framfærsluskilyrði verði að taka mið af íslenskum vinnumarkaði

BSRB hvetur stjórnvöld til að endurskoða reglugerðardrögin og tryggja að framfærsluskilyrði taki mið af raunverulegum aðstæðum fólks á íslenskum vinnumarkaði.

Bandalagið leggur áherslu á að fólk sem er í fullu starfi á kjörum samkvæmt gildandi kjarasamningum eigi ekki að þurfa að glíma við óraunhæfar framfærslukröfur þegar það sækir um dvalarleyfi eða íslenskan ríkisborgararétt.

 

Lesa umsögn BSRB í heild sinni