Launafólk þarf skýr svör fyrir kosningar

Launafólk þarf skýr svör frá þeim sem bjóða sig fram í komandi þingkosningum.

BSRB kallar eftir því að allir flokkar sem bjóða fram til Alþingis kynni launafólki hvernig þeir ætla að tryggja hagsmuni þess í fimm mikilvægum málaflokkum. Bandalagið hefur opnað sérstakan kosningavef þar sem farið er yfir málaflokkana og sett fram sjónarmið BSRB.

Á kosningavefnum er vísað til fimm málaflokka sem BSRB telur mikilvæga fyrir launafólk í landinu. Það er félagslegur stöðugleiki, fjölskylduvænt samfélag, heilbrigðismál, vinnumarkaðurinn og húsnæðismál.

BSRB hefur sett fram skýra afstöðu til þessara málaflokka:

Félagslegur stöðugleiki

  • Áhersla á efnahagslegan stöðugleika án tillits til félagslegs stöðugleika mun ekki skila árangri. Styrkja þarf velferðarþjónustuna verulega og búa almenningi félagslegt öryggi. Grundvöllurinn fyrir félagslegum stöðugleika er réttlátt skattkerfi sem stuðar að auknum jöfnuði.

Fjölskylduvænt samfélag

  • Vinna þarf að því að gera samfélagið fjölskylduvænna, til dæmis með því að stytta vinnuvikuna í 36 stundir og auka sveigjanleika í starfi. Þá þarf að hækka persónuafslátt, barnabætur, aðstoð við húsnæðiskaupendur og leigjendur og lengja fæðingarorlofið.

Heilbrigðismálin

  • Hækka þarf verulega fjárframlög til heilbrigðiskerfisins og draga úr kostnaði sjúklinga. Tryggja verður að heilbrigðisþjónustan verði rekin af hinu opinbera, ekki einkaaðilum, í samræmi við kröfu yfirgnæfandi meirihluta landsmanna.

Vinnumarkaðurinn

  • Kynbundinn launamunur er algerlega óásættanlegur og honum verður að eyða tafarlaust. Gera þarf átak gegn kynskiptum vinnumarkaði og ljúka vinnu við jöfnun launa á milli opinbera og almenna vinnumarkaðarins.

Húsnæðismál

  • Halda verður áfram með þær breytingar sem gerðar voru á húsnæðiskerfinu með uppbyggingu leigufélaga fyrir tekjulága. Taka verður næsta skref án tafar og hefja uppbyggingu almennra leigufélaga svo leiga sé raunverulegur valkostur við séreignastefnuna.

Nánar má lesa um afstöðu BSRB á kosningavef bandalagsins.

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?