Hinsegin dagar hófust með hátíðlegri athöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær. Framundan er fjölbreytt dagskrá og margvíslegir viðburðir sem ná hámarki með Gleðigöngunni á laugardag.
BSRB styður réttindabaráttu hinsegin fólks og regnbogafánarnir blakta að sjálfsögðu við hún fyrir utan BSRB-húsið við Grettisgötu þessa viku.
Við hvetjum öll til að sækja sem flesta viðburði í kringum hátíðina - og fagna fjöbreytileikanum!
Allar nánari upplýsingar má finna á vefsíðu Hinsegin daga.