Fara ofan í saumana á launatölfræði

Nefnd sem vinna á úrbætur á launatölfræði á að ljúka störfum fyrir lok árs 2018.

Forsætisráðherra hefur skipað nefnd um úrbætur og nýtingu launatölfræðiupplýsinga eins og ákveðið var á fundum með aðilum vinnumarkaðarins í byrjun árs. Fulltrúi BSRB í nefndinni er Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri bandalagsins.

Vinna nefndarinnar er mikilvægur hlekkur í því samtali sem átt hefur sér stað milli verkalýðshreyfingarinnar, atvinnurekenda og stjórnvalda á síðustu mánuðum. Þar hefur verið lögð þung áhersla á mikilvægi þess að hafa betri launatölfræði sem hægt er að nota við gerð kjarasamninga. Nefndinni er ætlað að ljúka störfum fyrir lok árs 2018.

Í frétt á vef forsætisráðuneytisins kemur fram að nefndin muni skoða aðferðafræði um launatölfræði á Íslandi, alþjóðlega launatölfræði og alþjóðlegar skuldbindingar Íslands. Þá muni nefndin skoða þarfir vinnumarkaðarins á þessu sviði og hugmyndir um stofnun fastrar launatölfræðinefndar að erlendri fyrirmynd og gera tillögur um umbætur og úrvinnslu á nýtingu launatölfræðiupplýsinga.

Í nefndinni sitja Lárus Blöndal, ráðgjafi á sviði tölfræðiupplýsinga á skrifstofu stefnumála, fulltrúi forsætisráðuneytisins og formaður nefndarinnar, Pétur Jónasson, fulltrúi fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir, fulltrúi velferðarráðuneytisins, Benedikt Valsson, fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga, Hrafnhildur Arnkelsdóttir, fulltrúi Hagstofu Íslands, Rannveig Sigurðardóttir, fulltrúi Seðlabanka Íslands, Emma Björg Eyjólfsdóttir, fulltrúi ríkissáttasemjara, Henný Hinz, fulltrúi Alþýðusambands Íslands, Helga Jónsdóttir, fulltrúi BSRB, Georg Brynjarsson, fulltrúi Bandalags háskólamanna, Oddur S. Jakobsson, fulltrúi Kennarasambands Íslands og Ólafur Garðar Halldórsson, fulltrúi Samtaka atvinnulífsins.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?