Námskeið fyrir trúnaðarmenn í næstu viku

Námskeið fyrir byrjendur og lengra komna verða kennd á vorönn.

Nú styttist í næsta námskeið fyrir trúnaðarmenn aðildarfélaga BSRB hjá Félagsmálaskóla alþýðu. Fimmti hluti trúnaðarmannanámsins verður kenndur dagana 14. og 15. janúar og því ekki seinna vænna að skrá sig til leiks.

Eftir uppstokkun á námsefni og skipulagi er hver hluti námsins 16 klukkustundir, kenndur á tveimur dögum í stað þriggja daga áður. Fimmti hluti námsins verður kenndur um miðjan janúar og sjötti og síðasti hlutinn í febrúar. Þeir trúnaðarmenn sem eru að stíga sín fyrstu skref ættu svo að taka frá dagsetningar í mars og apríl þegar fyrsti og annar hluti námsins verður kenndur.

Á vorönn 2019 eru eftirfarandi námskeið í boði:

 

Fimmti hluti – 14. og 15. janúar

Í fimmta hluta trúnaðarmannanámsins verður meðal annars kynning á VIRK - starfsendurhæfingu og á Vinnueftirlitinu. Farið verður í hvernig sjálfstraust einstaklinga hefur áhrif á samskipti og leiðir til að efla sjálfstraust.

  • Kynning á Virk-starfsendurhæfingarsjóðnum og starfi ráðgjafa þess.
  • Kynning á Vinnueftirlitinu, skyldum atvinnurekenda í vinnuvernd og trúnaðarmanna.
  • Farið er í hvernig sjálfstraust einstaklinga hefur áhrif á samskipti.
  • Nemendur kynnast áhrifum skorts á sjálfstraust og ýmsar birtingamyndir þess.
  • Nemendur kynnast leiðum til að efla sjálfstraustið og hvaða aðstæður geta haft áhrif á minnkandi sjálfstraust.

 

Sjötti hluti – 11. til 12. febrúar

Í sjötta hluta trúnaðarmannanámsins er farið yfir helstu hugtök í samningatækni. Lögð er áhersla á eðli og markmið samninga, grunnatriði samningagerðar og hvernig hún er notuð í daglegu lífi við úrlausn mála sem koma inn á borð trúnaðarmanna.

  • Nemendur kynnast helstu hugtökum í samningtækni.
  • Lögð er áhersla á eðli og markmið samninga, grunnatriði samningagerðar, hvernig hún er notuð í daglegu lífi við úrlausn mála sem koma inn á borð trúnaðarmanna.
  • Megináhersla er á undirbúning framsögu og umræður á vinnustaða- og félagsfundum, fundarsköp og frágang fundagerða.
  • Einnig er fjallað um einkenni og tilgang ýmissa ræðuforma. Lögð er áhersla á að skilgreina helstu einkenni rökræðu, mikilvægi þess að hlusta á skoðanir annarra.

 

Fyrsti hluti – 11. til 12. mars

Í fyrsta hluta trúnaðarmannanámsins er meðal annars farið ítarlega í hlutverk stéttarfélaga, sambanda og heildarsamtaka á vinnumarkaði. Einnig er hlutverk trúnaðarmannsins rætt og hvernig hann eigi að vinna með umkvörtunarefni.

  • Hvert er hlutverk stéttarfélaga, sambanda og heildarsamtaka á vinnumarkaði?
  • Hvernig starfa stéttarfélögin, stjórnir þeirra og hvert er hlutverk félagsmanna?
  • Hvert er hlutverk trúnaðarmanns á vinnustað, hvað á hann að gera og hvað á hann ekki að gera?
  • Hvert er hlutverk trúnaðarmanna samkvæmt lögum og kjarasamningum?
  • Hvar getur trúnaðarmaður aflað sér upplýsinga um túlkanir kjarasamninga og önnur mál sem koma inn á hans borð?
  • Hvernig eiga trúnaðarmenn að taka á móti umkvörtunum og vinna úr þeim?

 

Annar hluti – 8. til 9. apríl

Í öðrum hluta trúnaðarmannanámsins er lögð megináhersla á hvernig stuðla eigi að góðum samskiptum á vinnustað. Skoðuð eru mismunandi form framkomu og áhrif hennar á okkur og aðra. Einnig er rætt um einelti og hvernig bregðast eigi við því.

  • Lögð er megináhersla á mikilvægi góðra samskipta á vinnustað, hvernig megi stuðla að góðum samskiptum.
  • Skoðuð er mismunandi framkoma, áhrif hennar á okkur og aðra.
  • Nemendur kynnast afleiðingum langvarandi slæmra samskipta, eineltis á vinnustað, hvernig bregðast eigi við og ábyrgð gerenda og atvinnurekenda.
  • Nemendur kynnast starfsemi stéttarfélagsins, réttindum félagsmanna.
  • Nemendur læra á innihald og uppbyggingu kjarasamninga og helstu túlkun á þeim.
  • Nemendur kynnast sjóðum félagsins og réttindum félagsmanna í þeim.

 

Skráning í gegnum vefinn

Áhugasamir nemendur geta skráð sig á námskeiðin í gegnum vef Félagsmálaskóla alþýðu. Stofna þarf aðgang með íslykli eða lykilorði til að fá aðgang að námsgögnum og komast í samband við leiðbeinendur.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?