Nýr samfélagssáttmáli milli launafólks, stjórnvalda og fyrirtækja

Fimmta þing Alþjóðasambands verkalýðsfélaga

Fimmta þing Alþjóðasambands verkalýðsfélaga (ITUC) fer nú fram í Melbourne Ástralíu undir yfirskriftinni Nýr samfélagssáttmáli, A New Social Contract.

Meginverkefni þingsins er gerð stefnuyfirlýsingar til næstu fjögurra ára. Þar er lögð áhersla á þann lærdóm sem draga má af nýlegum efnahagslegum áföllum, áhrif tækninnar á störf, inngildandi verkalýðshreyfingu og réttlát umskipti í tengslum við loftslagsbreytingar.

Í drögum að stefnuyfirlýsingunni segir að alþjóðleg efnahagsstefna hafi brugðist vinnandi fólki og aukinn ójöfnuður og óréttlæti á heimsvísu sé afleiðing þessarar úreltu stefnu. Nýr samfélagssáttmáli sé því mikilvægari en nokkru sinni fyrr, svo hagkerfin þjóni mannkyninu og forði jörðinni frá bráðri hættu. Með samstöðu og styrk samtaka launafólks megi knýja fram slíkan sáttmála. Það sé forsenda lýðræðis, jafnréttis, jafnri skiptingu gæða og þrautseigjunnar sem þarf til að bregðast við þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir.

Þrátt fyrir að heimurinn sé þrisvar sinnum ríkari en hann var fyrir 20 árum búa um 70% fólks ekki við félagsvernd, 84% fólks á lágmarkslaunum telur sig ekki ná endum saman og 81% þjóða í heiminum hafa heimilað brot á grundvallarrétti launafólks til að gera kjarasamninga. Þessi staða nærir og viðheldur ójöfnuði sem leiðir til aukinnar örvæntingar og reiði sem dregur úr trú á lýðræðinu og býr til jarðveg fyrir einræðishyggju, fasisma og rasisma.

Það er því kominn tími á nýjan samfélagssáttmála milli launafólks, stjórnvalda og fyrirtækja um lágmarksréttindi launafólks til félagsverndar og öryggis.

Innleiðing nýs samfélagssáttmála myndi tryggja að réttindi séu virt, mannsæmandi vinnu, græn og góð störf, að öll geti lifað af launum sínum, rétt stéttarfélaga til að gera kjarasamninga við atvinnurekendur, félagsvernd, jafnrétti og inngildingu. Fyrirtækjum ber að taka samfélagslega ábyrgð og taka þátt í að festa nýjan samfélagssáttmála í sessi með þátttöku í þríhliða samtali við samtök launafólks og stjórnvöld.

Framtíðin sem við launafólk viljum veltur á því að við stöndum enn sterkari saman og skipuleggjum okkur enn betur!

Fylgjast má með umfjöllun frá þinginu á samfélagsmiðlum undir myllumerkinu #ITUC22 og beinu streymi ráðstefnunnar hér. 

Fleiri fréttir af þingi ITUC:

Fjárfestum í umönnun

Jafnrétti og samstaða á Kvennaþingi 

 

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?