Samið um launaþróunartryggingu

Formaður BSRB og fyrsti varaformaður BSRB undirrituðu samkomulagið ásamt fulltrúum ASÍ, Reykjavíkurborgar, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Samtaka atvinnulífsins og íslenska ríkisins.

Samkomulag um launaþróunartryggingu opinberra starfsmanna sem eru í BSRB var undirritað í fjármála- og efnahagsráðuneytinu í morgun. Laun félaga í BSRB sem starfa hjá ríkinu munu hækka um að meðaltali 1,3 prósent vegna samkomulagsins og laun félaga í ASÍ sem starfa hjá ríkinu um 1,6 prósent. Ekki hefur verið ákveðið hvernig hækkunin verður útfærð en það verður ákveðið með samkomulagi aðila á næstunni.

Samkomulagið sem undirritað var í dag er gert í kjölfar rammasamkomulags aðila vinnumarkaðarins frá október 2015. Aðild að samkomulaginu eiga íslenska ríkið, Samband íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborg, Alþýðusamband Íslands, BSRB og Samtök atvinnulífsins.

Í rammasamkomulaginu er kveðið á um að þeim sem starfa hjá ríki og sveitarfélögum verði bætt umframlaunaskrið á almennum vinnumarkaði. Með því er ætlunin að tryggja að laun opinberra starfsmanna sitji ekki eftir í almennri launaþróun.

Horft er til þróunar launa á almenna markaðinum annars vegar og hjá félögum í BSRB hins vegar á tímabilinu nóvember 2013 til nóvember 2016. Eins og fram kemur í rammasamkomulaginu verður launaþróunin mæld áfram og leiðrétt vegna áranna 2017 og 2018, ef tilefni er til, þegar þær tölur liggja fyrir.

Laun félagsmanna BSRB og ASÍ sem starfa hjá sveitarfélögum hafa hækkað meira en laun á almennum markaði á tímabilinu. Því taka þau ekki breytingum nú. Laun þessara hópa verða mæld áfram og gæti komið hækkana verði launaskrið á almenna markaðinum meira en hjá þeim.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?