Herferð sem BSRB, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Kennarasamband Íslands hafa í sameiningu staðið fyrir síðustu tíu daga lýkur í dag.
Ráðist var í herferðina til að vekja athygli á þeirri alvarlegu réttindaskerðingu sem felst í áformum stjórnvalda um að afnema áminningarskylduna.
Hún er grundvallarþáttur í ráðningarvernd opinberra starfsmanna og tryggir að ekki sé hægt að segja fólki upp án þess að það hafi fyrst fengið skýra áminningu og tækifæri til að bæta úr.
Ef áform stjórnvalda ná fram að ganga myndi það veikja stöðu launafólks verulega og auka líkur á ósanngjörnum uppsögnum.
Herferðin hefur fengið mjög mikil viðbrögð sem sýna skýrt að vilji er fyrir því hjá opinberum starfsmönnum að verja þessi mikilvægu réttindi.
Þótt herferðinni sé nú að ljúka er enn hægt að láta í sér heyra og senda skýr skilaboð til stjórnvalda.
BSRB hvetur allt launafólk og alla sem láta sig réttindi á vinnumarkaði varða til að senda stjórnvöldum áminningu og skýr skilaboð um að hafna beri afnámi áminningarskyldu.
Það er einfalt að taka þátt og senda áminningu á vefsíðunni góðáminning.is
Réttindi launafólks eru ekki sjálfgefin – þau hafa unnist með baráttu. Nú skiptir máli að standa vörð um þau.