SLFÍ heldur ráðstefnu um réttindi aldraðra

Litið verður til reynslu hinna Norðurlandanna á ráðstefnu SLFÍ um réttindi aldraðra.

Sjúkraliðafélag Íslands stendur fyrir ráðstefnu um réttindi aldraðra eftir hádegi fimmtudaginn 26. apríl næstkomandi á Icelandair Hótel Natura.

Þar verður meðal annars fjallað um stefnumótun í öldrunarmálum, eftirlit og aðhald með þeirri stefnu og litið til reynslu hinna Norðurlandanna í þessum mikilvæga málaflokki.

Bæði Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri munu ávarpa ráðstefnuna.

Lesa má nánar um ráðstefnuna og skoða dagskrá á vef Sjúkraliðafélags Íslands.

Skráning á ráðstefnuna er einnig á vef félagsins.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?