„Stafrænt ofbeldi er alvöru ofbeldi“

Frá Kvennaverkfallinu 2025

Alþjóðlegur baráttudagur Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi er í dag. BSRB vekur athygli á að dagurinn markar upphaf 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi en yfirskrift átaksins í ár er „Stafrænt ofbeldi er alvöru ofbeldi“.  Stafræn hatursummæli og -einelti og áhrif þess á bæði þolendur og samfélagið allt verður í brennidepli.

 

Stafrænt ofbeldi eykst

Í nýrri skýrslu ríkislögreglustjóra um tilkynningar til lögreglu kemur fram að tilkynningum um kynferðislega áreitni sem og stafræn kynferðisbrot fjölgaði milli ára um 60% ef miðað er við sama tíma í fyrra. Þetta sýnir að kynferðisbrotum er ekki að fækka og gríðarlega mikilvægt að við tökum öll höndum saman og vinnum bug á þessum alvarlega skammarbletti á okkar samfélagi.

Appelsínugulur er litur átaksins, en hann táknar framtíð án ofbeldis. Fjöldi bygginga verða lýstar upp í appelsínugulum lit í tilefni 16 daga átaksins.

Rannsóknir sýna að konur sem gegna opinberum störfum, hinsegin fólk, innflytjendur, konur í fjölmiðlum, ungt fólk og fatlaðar konur eru margfalt líklegri til að vera beittar stafrænu ofbeldi. Stafrænt ofbeldi hefur raunveruleg og djúpstæð áhrif á heilsu, líðan og tækifæri þolenda til þátttöku í samfélaginu og er því bein ógnun við grunnstoðir lýðræðisins‏.

BSRB tekur þátt í greinaröð sem birtast mun á Vísi næstu 16 daga.