Fundað var í vikunni í starfsmatsnefnd stéttarfélaganna og Sambands íslenskra sveitarfélaga, en nokkur hluti félagsmanna bæjarstarfsmannafélaga BSRB heyra undir starfsmatið.
Nýr kjarasamningur Starfsmannafélags Kópavogs veður kynntur í Salnum á miðvikudag 12.nóvember kl. 20:00. Önnur kynning verður síðan á fimmtudag 13. nóvember í Fannborg 6, 3. hæð, kl.13:00.
Starfsmannafélag Kópavogs hefur náð samkomulagi við Samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir hönd Kópavogsbæjar. Fyrirhuguðu verkfalli sem átti að hefjast í morgun hefur því verið afstýrt í bili.
Dagurinn 8. nóvember er helgaður baráttunni gegn einelti í samfélaginu. Dagurinn verður að þessu sinni haldinn hátíðlegur í fjórða sinn föstudaginn 7. nóvember til að skólar geti nýtt virkan skóladag til að huga að þessu mikilvæga málefni.
Niðurstöður úr norræna rannsóknarverkefninu; Hlutastörf, kyn og dreifing tekna, verða kynntar á norrænni ráðstefnu um jafnrétti á vinnumarkaði 12. nóvember. Erlendir og hérlendir fyrirlesarar fjalla um fjölmörg málefni tengd jafnrétti á vinnumarkaði á tveimur ráðstefnum um efnið 12. og 13. nóvember.
Samninganefndir Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga skrifuðu undir nýjan kjarasamning þann 30. október sl. Kynningarfundir um efni hins nýja samnings standa yfir og atkvæðagreiðsla vegna samninganna stendur yfir.
Fyrir réttum 30 árum síðan lauk allsherjarverkfalli BSRB og af því tilefni verður sýning á ljósmyndum sem Helgi Jóhann Hauksson tók í verkfallinu opnuð kl. 14 á morgun, fimmtudaginn 30. október, á 1. hæð í húsi BSRB að Grettisgötu 89.
Fjórða þrep Trúnaðarmannanámskeiðs BSRB fer fram 3. og 4. nóvember. Að þessu sinni verður farið yfir sjálfseflingu og samskipti og kennari er Sigurlaug Gröndal.
Ísland skipar 1. sæti á lista World Economic Forum 2014 þar sem jafnrétti kynjanna er mælt með hliðsjón af fjórum atriðum. Þetta er í sjötta skiptið í röð sem Ísland skipar fyrsta sætið en Norðurlöndin raða sér í efstu sætin. Finnland er í öðru sæti, Noregur í því þriðja, Svíþjóð í fjórða og Danmörk í því fimmta.
Utanríkisráðuneytið, Jafnréttisstofa, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar, Norðurslóðanet Íslands og Norræna ráðherranefndin bjóða til alþjóðlegrar ráðstefnu um jafnréttismál á norðurslóðum á Akureyri dagana 30.-31. október næstkomandi.