Leit
Leitarorð "Samfélag á krossgötum"
Fann 623 niðurstöður
- 161Leikskólamál eru eitt af stóru kosningarmálunum í komandi sveitarstjórnarkosningum. ASÍ og BSRB hafa tekið saman yfirlit um þróun leikskólaþjónustu á kjörtímabilinu 2022–2026. Samantektin sýnir að víða hafa orðið breytingar sem gera daglegt líf barnafjölskyldna flóknara, kostnaðarsamara og síður fyrirsjáanlegt. Foreldrar standa víða frammi fyrir styttri opnunartíma, fleiri lokunardögum, flóknari gjaldskrám og hærri kostnaði fyrir fulla vistun. Opnunartími leikskóla og hámarksdv
- 162Á Kvennaári 2025 hafa á sjötta tug samtaka sameinast um að vekja athygli á kynjamisrétti og vinna að því að kröfur Kvennaárs nái fram að ganga. Af þessu tilefni hafa Sigríður Ingibjörg Ingadóttir hagfræðingur BSRB og Steinunn Bragadóttir hagfræðingur hjá ASÍ tekið höndum saman um að birta tölfræði mánaðarlega sem varpar ljósi á kynjamisrétti. . Yfirlit greina þeirra má sjá hér
- 163sem samfélag byrja að innleiða það hjá barnafjölskyldum? Þeim mun hærri sem tekjur foreldra eru, þeim mun hærri skatt greiða þau hlutfallslega og barnabætur þeirra skerðast með hækkandi tekjum auk þess sem fjöldi foreldra á ekki rétt á þeim. Innleiðing ... tekjutenginga á leikskólagjöldum hefur því veruleg áhrif á jaðarskatta barnafjölskyldna. Ísland stendur á krossgötum í leikskólamálum. BSRB hefur lengi barist fyrir því að umönnunarbilið verði brúað, og loksins hafa stjórnvöld, sveitarfélögin og aðilar ... og verulegrar hækkunar gjaldskrár. Leikskólar eru meðal mikilvægustu stofnana í íslensku samfélagi og eitt mikilvægasta jöfnunar- og jafnréttistæki sem við eigum. Um það þarf að standa vörð og bregðast við þeim áskorunum sem blasa við með því að fjölga ... stöðugildum líkt og skýr krafa var um í ákalli leikskólastjóra borgarinnar og bæta kjör og starfsumhverfi. Leikskólakerfið verður ekki styrkt með niðurskurði. Það verður styrkt með því að fjárfesta í fólkinu sem heldur því uppi og í þjónustunni sem samfélagið
- 164fyrir að samfélagið hafi breyst verulega á nærri hálfri öld er enn stór hópur kvenna sem býr við launakjör sem duga engan veginn til framfærslu, óásættanlegt starfsumhverfi, vanvirðingu á framlagi þeirra og of langa vinnuviku. Í dag viljum við beina ... kastljósinu að stöðu þeirra kvenna sem veita þjónustu eða annast aðra einstaklinga í vinnunni og heima. Þær sinna mikilvægum störfum sem snerta okkur öll, börnin okkar, foreldra, ættingja og vini. Konur sem samfélagið gæti ekki verið án og vinnuframlag ... þeirra sem er svo mikilvægt að þær myndu setja samfélagið á hliðina ef þær legðu niður störf. Þetta eru til dæmis lægst launuðu störfin í okkar samfélagi, konur sem vinna við umönnun barna í leikskólum, grunnskólum og á frístundaheimilum. Álag er almennt meira ... er skoðuð. Það skilar samfélagi þar sem konur lifa að meðaltali 66 heilbrigð ár en meðalævilengdin er 84 ár. Karlar fá að jafnaði 71,5 heilbrigð ár en lifa að meðaltali 81 ár. Konur og karlar stóðu nærri jafnfætis hvað heilbrigði varðar fyrir efnahagshrunið ... þeirra í lífeyrissjóðum lægri. Skakkt verðmætamat á framlagi kvenna. Nærri hálfri öld eftir fyrsta kvennaverkfallið er framlag kvenna til samfélagsins ekki að fullu metið að verðleikum. Kynskiptur vinnumarkaður er enn helsta ástæða kynbundins launamunar
- 165Samningaviðræður opinberra starfsmanna við ríkið hafa nú staðið yfir í rúmt hálft ár. Á þessu hálfa ári hefur nánast enginn árangur náðst. Því hafa opinberir starfsmenn vísað málinu til ríkissáttasemjara til að freista þess að ná einhverri niðurstöðu áður en við neyðumst til að grípa til aðgerða. Vonbrigðin eru mikil því satt að segja lögðum við af stað í viðræðurnar full bjartsýni um breytta tíma og ný vinnubrögð. Fyrir utan almennar kröfur um launahækkanir og breytingar á einstökum
- 166BSRB og Alþýðusamband Íslands hafa ákveðið að setja á fót rannsóknarstofnun í vinnumarkaðsfræðum til að efla rannsóknir á sviði vinnumarkaðar, félags- og efnahagsmála. Norræn heildarsamtök á vinnumarkaði starfrækja mörg hver slíkar stofnanir og er því sérstakt ánægjuefni að íslenska verkalýðshreyfingin stígi nú þetta stóra skref. Tilgangurinn er að bæta þekkingu á lífsskilyrðum launafólks og brúa bilið milli fræðasamfélagsins og verkalýðshreyfingarinnar. Stofnuninni er ætlað að dýpka
- 167Nýr námsvísir Fræðslusetursins starfsmenntar fyrir komandi vetur er kominn á netið, auk þess sem prentuð eintök hafa verið send til skráðra félagsmanna. Þar kennir margra grasa og ljóst að félagsmenn aðildarfélaga BSRB geta sótt sér margskonar þekkingu. Fjöldi námskeiða verður kenndur í gegnum vefinn þannig að þátttakendur geta verið hvar sem er á landinu og sinnt náminu á þeim tímum sem þeim hentar. Á meðal námskeiða sem kennd verða með því fyrirkomulagi eru námskeið í tölvuleikni, í
- 168Nám fer ekki eingöngu fram innan formlega skólakerfisins heldur lærum við eitthvað gagnlegt í allskonar aðstæðum og ýmsu samhengi. Þetta er grundvallarhugmyndin á bak við raunfærnimat, þar sem færni einstaklingsins er metin án tillits til þess hvernig hennar var aflað. Ýmis raunfærnismatsverkefni eru í gangi um allt land og getur hluti þeirra nýst félagsmönnum aðildarfélaga BSRB, sér í lagi hópum sem ekki hafa lokið prófi á framhaldsskólastigi. Starfsmennt fræðslusetur hefur nú safnað
- 169Almenn ánægja var með baráttufund á Arnarhóli á kvennafrídaginn 24. október síðastliðinn. Í nýlegri skýrslu um undirbúning og framkvæmd kvennafrísins kemur fram að baráttu- og samstöðufundir hafi farið fram á að minnsta kosti sextán stöðum á landinu. Konur lögðu niður vinnu klukkan 14:55 þann 24. október 2018 síðastliðinn, en það var í sjötta skiptið sem konur á Íslandi mótmæla mismuni á kjörum kynjanna með þessum hætti. Tímasetningin var reiknuð út frá tölum frá Hagstofu Íslands um t
- 170Ákvarðanir stjórnvalda geta haft ólík áhrif á fólk eftir kyni. Kynjuð fjárlagagerð greinir þessi áhrif svo hægt sé að taka ákvarðanir byggt á þeim. Kynjuð fjárlagagerð hefur verið til umræðu í íslensku samfélagi í nokkur ár ... á þeirra forsendum, leitast við að brjóta upp hefðbundnar kynjamyndir og taka mið af fjölbreytileika samfélagsins. Þá er sérstaklega fjallað um það að mikilvægt sé að dýpka greiningar og horfa til margþættrar mismununar, með því að skoða þætti eins og fötlun
- 171Auka þarf samstarf aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda til að undirbúa þær breytingar sem verða munu á störfum á vinnumarkaði framtíðarinnar og takast á við þær áskoranir sem því fylgja. Samhliða þarf að halda áfram uppbyggingu velferðarkerfisins. Þetta var meðal þess sem rætt var á ráðstefnunni Framtíð vinnunnar sem Norræna ráðherranefndin og Alþjóðavinnumálastofnunin (ILO) héldu í Hörpu dagana 4. og 5. apríl í tilefni af 100 ára afmæli ILO. Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaðu
- 172Álag í starfi og kulnun hafa verið mikið í umræðunni undanfarið. BSRB stendur fyrir málþingi næstkomandi föstudag þar sem þessi málefni verða krufinn. Við hvetjum alla sem áhuga hafa á starfsumhverfi opinberra starfsmanna, kulnun og öðrum afleiðingum aukins álags til að mæta. Fyrirlesari á málþinginu verður Ingibjörg Jónsdóttir, forstöðumaður
- 173Bjarg íbúðafélag fagnar áhuga innlendra framleiðenda á því að vinna með félaginu. Félagið semur um uppbyggingu leiguíbúða í alverktöku og munu aðalverktakar eftir atvikum leita eftir tilboðum í ákveðna verkþætti, eins og fram kemur í frétt á vef félagsins. . Eins og fram hefur komið hefur verið gengið til samninga við IKEA um innrétting
- 174Opnunarávarp Elínar Bjargar Jónsdóttur, formanns BSRB, á 45. þingi bandalagsins. Kæru félagar. Verið velkomin á 45. þing BSRB. Yfirskrift þingsins að þessu sinni er „Bætt lífskjör – betra samfélag ... “. Á því grundvallast starfið okkar hjá BSRB. Við viljum gera allt sem við getum til að bæta lífskjör launafólks og til að bæta samfélagið okkar. Við höfum allar forsendur til að vera gott samfélag. Við búum í ríku landi með verðmætum auðlindum en einhverra hluta ... , er sú að stuðla að jöfnuði og réttlæti í samfélaginu. Við viljum styrkja almannaþjónustuna, við viljum þétta öryggisnetið og tryggja að allir eigi þar jafnan rétt, óháð efnahag. Við viljum gera fólki kleift að koma þaki yfir höfuðið og búa ... samfélaginu út úr þessum ógöngum, og af því getum við verið stolt. Áhersla BSRB í hruninu var að verja störfin og berjast fyrir því að almannaþjónustan gæti áfram sinnt sínu mikilvæga hlutverki. Það var gríðarmikið álag á starfsfólk ... hennar. Það voru færri hendur að vinna að erfiðari verkefnum en nokkru sinni fyrr. Alstaðar vantaði fjármagn inn í mikilvægan rekstur, allt var skorið niður. Áhersla BSRB var ekki síður á að tryggja að launuð störf sem höfðu verið á höndum samfélagsins færðust ekki inn
- 17545. þing BSRB verður sett á Hilton Hótel Nordica miðvikudaginn 17. október klukkan 10. Þingið mun standa fram á föstudag og munu alls um 200 þingfulltrúar frá öllum aðildarfélögum bandalagsins sitja þingið. Opnunarathöfn þingsins verður í beinni útsendingu á fréttavefnum Vísir.is og verður hlekkur á útsendinguna settur inn um leið og hún hefst. Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, mun opna þingið með ávarpi. Að því loknu munu þau Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Gylfi Ar
- 176Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, ávarpaði þingið. Hún sagði alla hópa samfélagsins jafn mikilvæga og að allir þurfi þeir að ná eyrum stjórnvalda og semja um lífskjör sín. Þar skipti samstaðan máli og að vinna skipulega að því að ná lausnum
- 177að auka jöfnuð í samfélaginu. Þannig þarf að nýta svigrúm sem kann að vera til staðar til að bæta fæðingarorlofskerfið. Núverandi fyrirkomulag fæðingarorlofsmála gerir láglaunafjölskyldum erfitt fyrir og ýtir þannig undir ójöfnuð. Í mars 2016
- 178Félagsmenn í aðildarfélögum BSRB og ASÍ hafa tekið vel við sér og fjölmargar umsóknir hafa borist Bjargi íbúðafélagi. Rétt er að minna sérstaklega þá sem búa á landsbyggðinni á möguleikann á að sækja um. Bjarg íbúðafélag, sem stofnað var af ASÍ og BSRB, hefur það að markmiði að byggja upp og leigja tekjulágum félögum þessara tveggja heildarsamtaka íbúðir. Félagið er ekki rekið í hagnaðarskyn
- 179Vel á fjórða hundrað umsókna hafa borist Bjargi íbúðafélagi þar til opnað var fyrir skráningu á biðlista eftir íbúð hjá félaginu um miðjan maí. Reiknað er með að fyrstu íbúðir félagsins verði tilbúnar um mitt næsta ár. Bjarg hefur þegar hafið byggingu á íbúðum í Spönginni í Grafarvogi og í Úlfarsárdal þar sem samtals 238 íbúðir munu rísa. Áformað er að framkvæmdir við samtals 450 íbúðir hefj
- 180Bjarg íbúðafélag hefur opnað fyrir skráningu á biðlista vegna íbúða félagsins. Reiknað er með afhendingu fyrstu íbúða í júní 2019. Íbúðir Bjargs íbúðarfélags eru fyrir fjölskyldur og einstaklinga á vinnumarkaði sem eru undir ákveðnum tekju- og eignamörkum og sem hafa verið fullgildir félagsmenn aðildarfélaga ASÍ eða BSRB s.l. 24 mánuði miðað við úthlutun. Félagið er rekið án hagnaðarmarkmiða. Skráningum á biðlista verður almennt raðað upp í þeirri röð sem þær berast og virkjast þegar