Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna, standa ASÍ, BSRB, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Kennarasamband Íslands fyrir morgunverðarfundi um ofbeldi í nánum samböndum og vinnumarkaðinn
Þrátt fyrir mikla umræðu um kynbundið ofbeldi á Íslandi hefur samhengið á milli vinnumarkaðar og ofbeldis í nánum samböndum ekki fengið athygli. Vinnustaðir geta gengt mikilvægu hlutverki í því að styðja þolendur ofbeldis og stefna stjórnvalda á því sviði sömuleiðis. Slíkur stuðningur getur veitt öryggi þegar heimilið er ekki öruggt og vinnusamband getur tryggt stöðugleika og fjárhagslegt öryggi fyrir brotaþola.
Í umræðunni um verðbólgu er oft vísað til launahækkana sem helsta orsakavaldsins, en síður rætt um undirliggjandi veikleika hagkerfisins, svo sem markaðsbrests á húsnæðismarkaði, fákeppni, innviðaskuld og veika tekjustofna hins opinbera
Síðustu ár hefur verið töluverð þróun erlendis sem snýr að því að veita þolendum ýmis réttindi á vinnumarkaði, svo sem launað leyfi og vernd frá uppsögnum.