Ríkið endurskoðar ekki afstöðuna til orlofs í sóttkví

Heildarsamtök launafólks skoða nú hvort látið verði reyna á túlkun ríkisins fyrir dómstólum.

Ríkið fellst ekki á túlkun BSRB og annarra heildarsamtaka launafólks á því hvernig standa skuli að skráningu orlofs þegar starfsfólki er gert að sæta sóttkví og telur að starfsfólk eigi ekki rétt á að fresta orlofstöku sé því gert að sæta sóttkví.

BSRB, Alþýðusamband Ísland, Bandalag háskólamanna, Félag Íslenskra hjúkrunarfræðinga, Kennarasamband Íslands og Læknafélag Íslands sendu nýlega erindi á Kjara- og mannauðssýslu ríkisins til að freista þess að skýra réttarstöðu starfsfólks sem gert hefur verið að sæta sóttkví í orlofi sínu. Í bréfinu kom fram að fjölmörg dæmi eru um að stofnanir ríkisins hafi neitað að breyta orlofsskráningu hjá starfsfólki sem þurft hefur að sæta sóttkví, sem að mati heildarsamtakanna stenst hvorki lög né ákvæði kjarasamninga.

Það er mat heildarsamtakanna og verkalýðsfélaganna að sóttkví í orlofi megi jafna við veikindi í orlofi. Þar er skýrt að veikist starfsfólk í orlofi telst sá tími sem það er veikt ekki til orlofs. Þá er bent á að niðurstaða Kjara- og mannauðssýslu ríkisins samræmist ekki markmiðum laga um tímabundnar greiðslur vegna launa einstaklinga í sóttkví. Með því að halda orlofsskráningu til streitu sé komið í veg fyrir að starfsfólkið geti sótt um greiðslu launa í sóttkví.

Nú þegar stjórnvöld hafa enn á ný hert sóttvarnaraðgerðir skýtur skökku við að dregið sé úr samstöðu um aðgerðir með því að halda við óbilgjarna afstöðu til réttinda starfsfólks sem lendir í þessari stöðu. Í ljósi þessarar niðurstöðu ríkisins munu heildarsamtökin sem stóðu að erindinu skoða hvort rétt sé að láta reyna á þessa túlkun fyrir dómstólum.

Erindi BSRB, ASÍ, BHM, Fíh, KÍ og LÍ.

Svar Kjara- og mannauðssýslu ríkisins.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?