Birkihlíð orlofshús

Orlofshús BSRB

Aðildarfélög BSRB hafa á undanförnum árum tekið yfir rekstur orlofshúsa sinna, hvort sem um er að ræða orlofshúsabyggðina í Munaðarnesi eða annarsstaðar. Til að kynna sér hvaða orlofshús standa til boða þurfa félagsmenn að fara inn á síður síns aðildarfélags og bóka orlofshús þar.

BSRB hefur aðeins eitt orlofshús til umráða. Birkihlíð er orlofshús á tveimur hæðum sem staðsett er í Munaðarnesi í Borgarfirðinum um 20 km fyrir utan Borgarnes, skammt frá Bifröst.

Húsið var allt tekið í gegn fyrir sumarið 2021 og er búið veglegum sólpalli sem nær í kringum þrjár hliðar hússins. Þar er einnig heitur pottur og fallegt útsýni yfir Norðurá. Á efri hæð hússins er samliggjandi stofa og borðstofa þaðan sem opið er inn í eldhús. Á hæðinni er einnig stórt svefnherbergi með hjónarúmi auk lítils salernis. Á neðri hæð hússins er sjónvarpskrókur með svefnsófa auk tveggja svefnherbergja með aðskildum rúmum. Þar er einnig stórt baðherbergi með þvottavél, þurrkara og sturtu. Af neðri hæðinni er hægt að ganga út á pallinn þar sem heiti potturinn er ásamt gasgrilli. Birkihlíð hefur því svefnaðstöðu fyrir átta manns fullorðna auk þess sem þar er ferðarúm fyrir börn.

MYNDIR AF BIRKIHLÍÐ

Í orlofshúsabyggðinni í Munaðarnesi er leikvöllur fyrir börn, gervigrasvöllur til knattspyrnuiðkunnar, minigolfvöllur og margar fallegar gönguleiðir. Stutt er í sundlaugina að Varmalandi og golfvelli, auk þess sem hægt er að komast í veiði víða í næsta nágrenni.

Bókanir og frekari upplýsingar um útleigu hússins eru veittar á skrifstofu BSRB í síma 525 8300 eða á netfangið bsrb@bsrb.is.

 

Til að komast að bústaðnum er ekið um Vesturlandsveg. Beygt er inn veg 5297, sem merktur er Orlofsbyggðir BSRB, og ekið að áhaldahúsi. Beygt er inn þröngan veg hægra megin við áhaldahúsið til að komast að Birkihlíð. Smellið á kortið hér til hliðar til að stækka það.

 

Kort Birkihlíð
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?