Það er því engin breyting á okkar kjarasamningum í dag. Þeir eru í gildi og áfram verður unnið að því að verja kjör félagsfólks og bregðast við þeirri stöðu sem upp er komin.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB tók þátt í pallborði á ráðstefnunni Hagfræði og samfélagið, sem haldinn var í Háskólanum í Reykjavík miðvikudaginn 26. ágúst.
Þegar fólki er sagt upp hverfa verkefnin sjaldnast með því. Þjónustan þarf áfram að vera til staðar og þá vaknar spurningin hvort kostnaðurinn flytjist einfaldlega annað. Hvað kostar það árlega, fyrir ríkið og sveitarfélög, að kaupa þjónustu sem þau sinntu áður sjálf? Hversu stór hluti skattfjár fer í aðkeypta þjónustu vegna þess að opinberir aðilar telja sig ekki lengur hafa bolmagn eða getu til að sinna henni? Þetta eru mikilvægar spurningar sem hafa ekki fengið þá umræðu sem þær verðskulda.
Vorskýrsla Kjaratölfræðinefndar er komin út og var kynnt á fundi í húsakynnum ríkissáttasemjara í morgun 30. júní. Í skýrslunni er fjallað um þróun efnahags- og vinnumarkaðsmála, launa og kjarasamninga. Nýtt í skýrslunni er tölfræði um launabreytingar eftir launastigi, mörkuðum og heildarsamtökum launafólks
En í þeirri umræðu má lífeyririnn ekki gleymast. Lífeyrir er ekki aukaatriði sem kemur okkur við síðar á ævinni. Hann er hluti af kjörunum okkar hér og nú, hluti af heildarlaunum okkar, þó hann sé greiddur út síðar.
Það er ekki nóg að byggja upp húsnæði, fjölga rýmum, innleiða stafrænar lausnir eða setja fram almenn markmið um aukna skilvirkni. Þjónustan verður ekki veitt nema til staðar sé nægilega margt fagmenntað starfsfólk með skýrt hlutverk, viðunandi starfsaðstæður og kjör sem standast ábyrgðina sem lögð er á herðar þess. Þar eru sjúkraliðar ein af grunnstoðum kerfisins.
BSRB og önnur samtök launafólks stóðu fyrr á árinu fyrir fundi um þetta málefni og birtu grein þar sem fjallað var um nauðsyn slíkra breytinga. Í kjölfarið átti BSRB samtal við ráðherra um mikilvægi þess að halda áfram vinnu við fullgildingu samþykktarinnar.