Hvar á láglaunafólk að búa?
Um síðustu aldamót þegar stjórnvöld lögðu niður verkamannabústaðakerfið var tekin pólitísk ákvörðun um að markaðsvæða húsnæðisöryggi láglaunafólks. Sú ákvörðun gróf undan lífskjörum og skildi stóran hóp launafólks eftir með óhóflegan húsnæðiskostnað. Enn í dag er staðan sú að fjöldi fólks á vinnumarkaði hefur enga möguleika á að kaupa sér húsnæði.
27. apr 2026
Húsnæðismál, Bjarg, sveitarstjórnarkosningar