Garðabær braut gegn lögum um jafna meðferð á vinnumarkaði með því að falla frá ráðningu menntaðs náms- og starfsráðgjafa, í starf á leikskóla samkvæmt niðurstöðu kærunefndar jafnréttismála.
Fjallað er um þróun efnahagsmála og launa í yfirstandandi kjarasamningalotu í haustskýrslu Kjaratölfræðinefndar (KTN) sem og uppgjör vegna síðustu kjarasamningalotu árin 2019 til 2022. Niðurstöður skýrslunnar voru kynntar í húsi ríkissáttasemjara fyrr í dag.
Stór hluti fatlaðs fólks á Íslandi býr við sárafátækt og lífsskilyrði lífeyristaka eru töluvert verri en launafólks. Þetta sýna niðurstöður nýrrar rannsóknar Vörðu, rannsóknastofnunnar vinnumarkaðarins og ÖBÍ réttindasamtaka
Hluti af hagsmunagæslu BSRB felst í að vinna umsagnir um fjölda þingmála á hverju þingi. Mál sem bandalagið veitir umsagnir eru almennt mál sem hafa með einhverjum hætti áhrif á félagsfólk aðildarfélaga bandalagsins og er leitast við að gæta hagsmuna þeirra í hvívetna.
Fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar, atvinnurekenda og stjórnvalda á Norðurlöndum komu saman til að ræða réttlát græn umskipti á vinnumarkaði í fjölmennu þríhliða samtali í Hörpu á föstudag, 1. desember.