16
Niðurstöður könnunar sem gerð var meðal félagsmanna Sameykis, stærsta aðildarfélags BSRB, sýna að meirihluti þeirra telur það jákvætt að vinna heima. Alls töldu rúmlega 57 prósent það mjög eða frekar jákvætt að vinna heima, um 23 prósent ... voru hlutlaus en tæp 15 prósent töldu það mjög eða frekar neikvætt.
Fjallað er um könnunina í nýjasta eintaki tímarits Sameykis, sem kom út í dag. Í könnuninni kom fram að innan við helmingur svarenda, um 40 prósent, vann heima í faraldrinum ... og að af þeim sem það gerðu hafði meirihlutinn, rúm 60 prósent, ekkert val.
„Meirihluti fólks sem fór heim að vinna taldi það jákvætt,“ sagði Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis