Atvinnutekjur hinsegin karla eru 30% lægri en gagnkynhneigðra karla á ársgrundvelli en hverfandi munur mælist hjá hinsegin konum. Aðeins um helmingur hinsegin fólks á vinnumarkaði er að fullu opið með hinseginleika sinn á vinnustöðum og tæplega ... 60% segir að almennt halli á kjör þeirra og réttindi á vinnumarkaði.
Sterkt ákall er um aukna umfjöllun um málefni hinsegin fólks á vinnumarkaði. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu Hagfræðistofnunar um hinsegin vinnumarkað sem unnin ... var fyrir ASÍ, BHM og BSRB og könnun BHM um hinsegin vinnumarkað. Samantekt skýrslunnar má sjá ... voru atvinnutekjur um 1.100 hinsegin einstaklinga samkvæmt skattframtölum bornar saman við atvinnutekjur gagnkynhneigðra. Almennt eru atvinnutekjur hinsegin fólks 18% lægri en gagnkynhneigða samanburðarhópsins. Munurinn nemur 30% hjá hinsegin körlum í samanburði ... hjá hinsegin konum í samanburði við gagnkynhneigðar konur. En vert er að hafa í huga að konur eru lægst launaðar á íslenskum vinnumarkaði og atvinnutekjur kvenna eru um 21% lægri en karla samkvæmt gögnum frá Hagstofu Íslands.