Foreldrar barna sem þurfa að vera frá vinnu vegna skerðinga á skólastarfi eða vegna þess að börn eru í sóttkví ættu að fá rétt á tímabundnum greiðslum.
COVID-19 faraldurinn mun hafa mikil áhrif á samfélagið en verkalýðshreyfingin mun gera allt til að tryggja afkomu og velferð launafólks í kreppuástandinu.
Stjórnvöld hafa sent frá sér yfirlýsingu í tengslum við gerð kjarasamninga aðildarfélaga BSRB um að þau beiti sér fyrir velferð barnafjölskyldna og endurmati á launum kvennastétta.
Aðildarfélög BSRB sem boðað höfðu til verkfallsaðgerða undirrituðu öll kjarasamninga við viðsemjendur í gærkvöldi og nótt og var verkföllum því aflýst.
Ákveðið hefur verið að hætta við áformaðan baráttufund sem boðað hafði verið til á morgun vegna þess hættuástands sem ríkir vegna COVID-19 faraldursins.
Samninganefndir BSRB og aðildarfélaga bandalagsins hafa fundað sleitulaust undanfarna daga til að freista þess að semja áður en verkföll hefjast á miðnætti.