Aðgerðahópur um launajafnrétti og jafnrétti á vinnumarkaði var skipaður af forsætisráðherra þann 13. desember 2021. Stofnun hans á rætur að rekja til kröfu BSRB um að gripið verði til aðgerða til að leiðrétta kerfisbundið vanmat á kvennastörfum.
Starfsfólk sem er í verkfalli hittist gjarnan á morgnana á samstöðufundum áður en haldið er af stað í verkfallsvörslu og önnur verkefni dagsins. Í þessari viku hafa stórir fundir verið haldnir í Kópavogi, Reykjanesbæ og Mosfellsbæ þar sem hundruðir starfsmanna komu saman og sýndu samstöðu og baráttugleði
Fundur BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga hjá ríkissáttasemjara í dag skilaði ekki árangri. Ekki hefur verið boðaður annar fundur í ljósi þess hversu langt ber á milli deiluaðila.
Enn frekari verkfallsaðgerðir eru í undirbúningi hjá BSRB í ljósi þess að ekkert þokast í samningaviðræðum hefjast atkvæðagreiðslur í dag um aðgerðir í 29 sveitarfélögum.
Verkfallsaðgerðir BSRB hefjast á mánudaginn. Fundur BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga hjá ríkissáttasemjara í dag skilaði engum árangri. Ekki hefur verið boðaður annar fundur í ljósi þess hversu langt ber á milli deiluaðila.