161
Fræðslufundur í tengslum við starfslok verður haldinn í húsnæði BSRB að Grettisgötu 89 mánudaginn 3. febrúar kl. 15:15. Einnig verður fundurinn sendur út með fjarfundarbúnaði og hægt verður að fylgjast með honum í Háskólanum á Akureyri, Sólborg stofu L 101..
Fullbókað er á fundinn en hann verður svo settur í heild sinni á vef BSRB í vikunni. Þar verðu
162
Landspítali háskólasjúkrahús-bráðadeild
hlaut í dag nýsköpunarverðlaunin 2014 í opinberri þjónustu og stjórnsýslu, sem
afhent voru á ráðstefnu á Grand hótel. Verðlaunin voru í dag afhent í þriðja
sinn og að þessu sinni voru yfir 40 verkefni tilnefnd
163
Íslenskir friðarsinnar hafa efnt til friðargöngu niður Laugaveginn á Þorláksmessu undanfarin þrjátíu og fimm ár. Óhætt er að segja að gangan sé orðin ómissandi þáttur í jólaundirbúningnum og tekur fjöldi fólks sér hlé frá tiltektum og innkaupum rétt fyrir jólin til að leggja sitt af mörkum og styðja kröfuna um frið og afvopnun í heiminum. Undanfarin ár hafa slíkar göngur einnig verið á Þorláksmessu á Akureyri og á Ísafirði og verður svo einnig nú
164
Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB var í viðtali við Spegilinn á Rúv í gær þar sem m.a. var rætt um komandi kjarasamninga og ný vinnubrögð í kringum þá vinnu. .
Fjallað var sérstaklega um nýja skýrslu sem aðilar vinnumarkaðarins hafa látið gera í sameiningu um efnahagsumhverfi og launaþróun. Skýrslan mun nýtast samninganefndum vel við þá vinnu sem f
165
Við ætlum að hlusta á stuttar hugvekjur Anítu Óskar Georgsdóttur og Magdalenu Önnu Reimus sem eru í verkfalli um þessar mundir auk Sonju Ýr Þorbergsdóttur formann BSRB og heyra í hinni frábæru Lúðrasveit verkalýðsins. Svo munum við syngja með þeim Bóasi
166
Enn færist þungi í verkföll BSRB. Þar sem ekki hefur náðst að semja bætist starfsfólk sundlauga og íþróttamiðstöðva á Vestur-, Norður-, og Austurlandi við hópinn sem þegar hefur lagt niður störf. Um helgina verður
167
Staða hagkerfisins í kjölfar heimsfaraldurs er mun betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Þannig hefur hagkerfið tekið fyrr við sér, skuldir ríkissjóðs eru lægri og tekjur umtalsvert hærri en búist var við. Það eru því vonbrigði að stjórnvöld ætli ekki að nýta þessa jákvæðu þróun til að styrkja heilbrigðiskerfið, bregðast við vaxandi ójöfnuði og stuðla að aukinni velferð. Þetta er meðal þess sem fram kemur í umsögn BSRB um tekjubreytingarfrumvarpið fyrir árið 2023 og Heiður Margrét Björnsdóttir
168
„BSRB hefur ítrekað bent á mikilvægi þess að styrkja almannaþjónustuna og tekjutilfærslukerfin til að efla velferð hér á landi. Fjárlagfrumvarpið svarar ekki þessu ákalli heldur boðar þvert á móti niðurskurð í opinberri þjónustu og stefnuleysi í tekjutilfærslukerfunum“, segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB í grein á www.bsrb.is.
.
Þrátt fyrir að í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2023 sé teiknuð upp mynd af hagkerfi á blú
169
miklu um almenn lífskjör.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) bendir á að framboð íbúða til sölu sé í sögulegu lágmarki í framhaldi af metfjölda kaupsamninga á árinu 2021. Íbúðum í byggingu fækkar einnig sem mun hafa í för með sér minnkandi
170
Í stað þess að fara í kraftmikla sókn til að vaxa úr efnahagslegri niðursveiflu af völdum heimsfaraldursins boða stjórnvöld stöðnun í nýju fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2022, að því er segir í umsögn BSRB..
Of mikil áhersla er á að stöðva skuldasöfnun þrátt fyrir að skuldaaukning hins opinbera hér á landi vegna faraldursins sé minni en meðal flest
171
Nýjar rannsóknir Vörðu – rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins sýna að staða erlendra ungmenna utan vinnumarkaðar og skóla hefur versnað nokkuð á síðustu árum.
Niðurstöður rannsóknanna tveggja voru kynntar á netfundi Vörðu fyrr í dag. Þar kom fram að undanfarna áratugi hefur dregið úr atvinnuþátttöku ungmenna víðast hvar í aðildarríkjum OECD. Samhliða því hefur orðið fjölgun í hópi ungmenna sem stunda hvorki nám né atvinnu og gildir það sama á Íslandi.
Við greiningu á gögnum fr
172
Nú þegar öllum ætti að vera ljóst mikilvægi þess að byggja upp öflugt heilbrigðiskerfi eftir áratuga niðurskurð dynur á heilbrigðisstarfsfólki umræða um þjónustuvæðingu, niðurskurð, stjórnleysi og skort á skilvirkni. Á þessu sama starfsfólki og staðið hefur vaktina í heimsfaraldrinum síðustu átján mánuðina og sýnt ótrúlega seiglu og fagmennsku þrátt fyrir á köflum ótrúlegt álag.
Við búum í markaðshagkerfi en það norræna módel sem við höfum byggt samfélag okkar á grundvallast á opinber
173
Ríkissáttasemjari mun standa fyrir námstefnum í samningagerð fyrir alla sem eiga sæti í samninganefndum og vinna að kjarasamningsgerð í landinu. Með þeim er markmiðið að bæta vinnubrögð við kjarasamningsgerð, læra nýjustu aðferðir, deila reynslu og efla marksækni og fagmennsku við samningaborðið.
Hver námstefna stendur í þrjá daga og geta þátttakendur valið tímasetningu og staðsetningu sem hentar þeim. Að námskeiði loknu munu þátttakendur hafa öðlast þekkingu á lögum og leikreglum í k
174
Heimsfaraldur kórónuveirunnar hefur sýnt fram á mikilvægi opinberra starfsmanna og eytt mýtum á borð við að auðvelt og hagkvæmt sé að einkavæða almannaþjónustu og að ekki sé réttlætanlegt að auka útgjöld í samfélagsleg málefni. Opinberir starfsmenn munu einnig gegna lykilhlutverki þegar kemur að því að koma samfélaginu út úr kreppunni sem faraldurinn kallaði yfir heimsbyggðina.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í
175
Heimsfaraldurinn sem við erum nú loks farin að sjá fyrir endann á hefur verið gríðarleg þolraun fyrir íslenska heilbrigðiskerfið og það ótrúlega öfluga fólk sem þar starfar. Þrátt fyrir að þessi mikilvæga þjónusta hafi verið fjársvelt og starfsfólkið búið við óhóflegt álag áður en faraldurinn skall á stóðst hún prófið og skilaði landsmönnum í gegnum faraldurinn betur en flestir þorðu að vona.
Nú þegar við erum loksins farin að leyfa okkur að vona að það versta sé að baki hefst kunnugl
176
Annað árið í röð og í annað skiptið síðan 1923 getur íslenskt launafólk ekki safnast saman á 1. maí til að leggja áherslu á kröfur sínar. Líkt og í fyrra er brugðist við þessari stöðu með útsendingu frá sérstakri skemmti- og baráttusamkomu sem verður sjónvarpað á RÚV að kvöldi 1. maí klukkan 21:00.
Landsþekktir tónlistarmenn, skemmtiatriði og hugleiðingar launafólks víða af á landinu einkenna þáttinn. Meðal listamanna sem koma fram eru Emilíana Torrini og vinir, Margrét Rán og félagar
177
Réttlát umskipti er þýðing á hugtakinu Just Transition sem var fyrst notað af bandarísku verkalýðshreyfingunni á tíunda áratug síðustu aldar. Þá var verið að krefjast stuðningskerfis fyrir verkamenn sem misstu vinnuna vegna strangar umhverfisverndarlöggjafar.
Alþjóðaverkalýðshreyfingin, ITUC, gerði síðan hugtakið að sínu og nú er merking þess sú að það þurfi að hámarka áhrif loftslagsaðgerða til að ná kolefnishlutleysi en lágmarka á sama tíma byrðar sem lagðar eru á launafólk og almen
178
Samtök launafólks í Norræna verkalýðssambandinu og þýska alþýðusambandinu styðja markmið stjórnvalda ríkjanna í loftslagsmálum og nauðsyn þess að ná kolefnishlutleysi fyrir miðja öldina. Til að svo geti orðið eru kerfisbreytingar óumflýjanlegar. Þær verða að fara fram á forsendum réttlátra umskipta þannig að bæði kostnaði og ábata við þær breytingar sem framundan eru verði deilt með sanngjörnum hætti. Til að tryggja þetta leggja ASÍ, BSRB og BHM til að sérstökum vinnuhópi verði komið á fót se
179
Það getur verið flókið að kynna sér þær umfangsmiklu breytingar sem framundan eru hjá vaktavinnufólki þann 1. maí næstkomandi þegar vinnuvika þeirra styttist. Nú er hægt að sjá upplýsingar um breytinguna í hnotskurn á vefnum betrivinnutimi.is..
Þann 1. maí mun vinnuvika vaktavinnufólks styttast úr 40 stundum í 36, eða úr 173,33 k
180
Nú þegar innleiðingu á styttingu vinnuvikunnar í dagvinnu er lokið eða að verða lokið á vinnustöðum ríkis og sveitarfélaga er undirbúningur undir styttinguna hjá vaktavinnufólki kominn á fullan skrið og tími til kominn fyrir alla sem starfa í vaktavinnu á vinnustöðum hins opinbera að kynna sér málið.
Mikið af kynningarefni hefur þegar verið gefið út og breytir engu hvort starfsfólki hentar betur að lesa sér til eða horfa á stutt og vel framsett kynningarmyndbönd, allir geta fundið kyn