121
Félagsmenn aðildarfélaga BSRB sem starfa hjá ríkinu munu fá 105 þúsund króna innágreiðslu 1. ágúst frá ríkinu vegna tafa sem orðið hafa á gerð kjarasamninga samkvæmt endurskoðaðri viðræðuáætlun. Viðræður eru í gangið við Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg um framhald kjaraviðræðna.
Í endurskoðaðri viðræðuáætlun sem aðildarfélög BSRB og samninganefnd ríkisins hafa gert með sér kemur fram að stefna eigi að því að ljúka gerð nýs kjarasamnings fyrir 15. september, en samni
122
Formaður Akademikerne í Danmörku.
Jarkko Eloranta . Formaður SAK í Finnlandi.
Antti Palola. Formaður STTK í Finnlandi
123
Helsti þröskuldur í samfélagsgerð okkar hvað jafnréttisbaráttu varðar er kynjamisrétti og rótgrónar hugmyndir um karlmennsku og kvenleika. Íslenskur vinnumarkaður er afar kynjaskiptur sem best sést á því að konur eru meirihluti starfsmanna í umönnun en mikill meirihluti þeirra sem starfa við mannvirkjagerð eru karlar.
Ímynd kvenna á vinnumarkaði er oft ekki opinberuð sem kemur fram hvernig „fjórða valdið“, fjölmiðlar, umgangast konur og þeirra störf. Sagt er að eigi umfjöllun sem sner
124
Innleiðing breyttrar persónuverndarlöggjafar hjá hinu opinbera er efni málþings sem Háskólinn á Bifröst og Fræðslusetrið Starfsmennt standa sameiginlega að í
125
Það ætti ekki að hafa farið fram hjá neinum sem fylgst hefur með fréttum að staðan á vinnumarkaði vegna kjarasamningsviðræðna er flókin og viðkvæm. Ástæður þess má meðal annars rekja til þess að launahækkanir síðustu kjarasamninga árið 2015 skiluðu sér ekki með tilætluðum hætti til þeirra tekjulægstu vegna ákvarðana eða athafnaleysis stjórnvalda.
Ástæður þess að góðærið skilaði tekjulágum ekki því sama og þeim tekjuhærri voru einkum þær að skattbyrði þeirra tekjulægri jókst og skerðin
126
Tillögur átakshóps stjórnvalda í húsnæðismálum eru vel unnar og eru gott innlegg í umræðuna að mati BSRB. Ástæða er til að fagna þeirri samstöðu sem hefur náðst um aðgerðir. Nú þurfa stjórnvöld að hafa hraðar hendur og fjármagna tillögurnar og tryggja að þær nái fram að ganga.
Mikilvægt er að f
127
Nú styttist í næsta námskeið fyrir trúnaðarmenn aðildarfélaga BSRB hjá Félagsmálaskóla alþýðu. Fimmti hluti trúnaðarmannanámsins verður kenndur dagana 14. og 15. janúar og því ekki seinna vænna að skrá sig til leiks.
Eftir uppstokkun á námsefni og skipulagi er hver hluti námsins 16 klukkustundir, kenndur á tveimur dögum í stað þriggja daga áður. Fimmti hluti námsins verður kenndur um mið
128
Auka ætti enn meira samstarf BSRB og Alþýðusambands Íslands (ASÍ) á næstu árum enda mikill samhljómur í áherslumálum, kröfum um hækkun lægstu launa og styttingu vinnuvikunnar sagði Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, þegar hún ávarpaði 43. þing ASÍ í morgun.
Þar fór hún yfir það mikla samstarf sem heildarsamtökin hafa átt á síðustu árum og ítrekaði mikilvægi samstöðunnar.
„Þó að stundum sé gert mikið úr ólíkum áherslum BSRB og ASÍ er staðreyndin sú að það er miklu meira se
129
Forsætisráðherra og þrettán þingmenn úr öllum flokkum kynntu sér starfsemi Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna á fundi sem fram fór í húsnæði BSRB á fimmtudag.
„Það er mikilvægt að yfirvöld þekki til starfsemi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og viti hvað brennur á þess
130
Formannaráð BSRB fordæmir harðlega bónusgreiðslur til stjórnenda fyrirtækja og launakjör þeirra sem eru í engu samræmi við raunveruleika íslensk launafólks. Þetta kemur fram í ályktun ráðsins sem samþykkt var á fundi ráðsins nú rétt fyrir hádegi.
Ráðið skorar á bæði fulltrúa launafólks og fulltrúa atvinnurekenda í stjórnum lífeyrissjóða að beita sér af fullum þunga gegn þessari óheillaþróun. Ráðið telur það ekki hlutverk lífeyrissjóða landsmanna að fjárfesta í fyrirtækjum sem sýna af
131
Skipaður hefur verið aðgerðahópur á vegum Velferðarráðuneytisins í kjölfar #metoo byltingarinnar til að fylgja eftir aðgerðum á vinnumarkaði sem miða að því að koma í veg fyrir einelti, kynferðislegt og kynbundið áreiti og ofbeldi á vinnustöðum.
Aðgerðahópurinn mun taka við hugmyndum að úrbótum sem settar hafa verið fram á vinnufundum breiðs hóps úr atvinnulífinu. Mun hópurinn meðal annars vinna úr hugmyndum um fræðslu til fyrirtækja, heimasíðu með aðgengi að upplýsingum um málefnið o
132
Nú er námsskrá fyrir nám trúnaðarmanna hjá Félagsmálaskóla alþýðu fyrir haustið komin út. Námið var stokkað upp í byrjun árs og námið gert hnitmiðaðra og verður starfað áfram samkvæmt nýju skipulagi á haustönninni.
Eins og fram kemur á vef Félagsmálaskóla alþýðu er námið í heild sinni 96 kennslustundir og hefur verið stytt umtalsvert því það var áður 142 kennslustundir. Það var gert með
133
Níu verkefni sem rædd hafa verið á samráðsfundum stjórnvalda með aðilum vinnumarkaðarins eru enn í vinnslu en þremur hefur verið lokið. Þetta kemur fram í yfirliti sem forsætisráðuneytið hefur birt.
Stjórnvöld boðuðu aðila vinnumarkaðarins til fyrsta samráðsfundarins í desember 2017, fljótlega efti
134
Skrifstofa BSRB verður lokuð í fjórar vikur í sumar vegna sumarfría starfsmanna. Við lokum mánudaginn 9. júlí og opnum aftur þriðjudaginn 7. ágúst.
Vonandi geta sem flestir komist út í náttúruna til að hlaða batteríin fyrir haustið!
135
Heilbrigðisráðherra hefur skipað Landspítalanum ráðgjafarnefnd til næstu fjögurra ára. Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri BSRB, mun taka sæti í nefndinni.
Nefndin á að vera forstjóra og framkvæmdastjórn spítalans til ráðgjafar og álits um þjónustu, starfsemi og rekstur spítalans, að því er fram kemur í frétt á vef Velf
136
Leita á leiða til að fjölga starfsfólki í stéttum í heilbrigðiskerfinu sem glíma við atgervisflótta, þar með talið sjúkraliðum, að því er fram kemur í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn á Alþingi. BSRB telur mikilvægt að móta framtíðarstefnu í mannauðsmálum hjá ríkinu.
Í svarinu kemur fram að meðal þeirra þátta sem sé vert að skoða séu starfsumhverfi, launastefna, vinnutí
137
Frestur til að skila inn umsókn fyrir nám í Norræna lýðháskólanum í Genf, Genfarskólanum, rennur út í lok janúar. Skólinn er ætlaður virkum félagsmönnum í stéttarfélögunum sem hafa áhuga á alþjóðamálum verkalýðshreyfingarinnar.
Æskilegt er að umsækjendur hafi sótt fræðslustarf á vegum verkalýðshreyfingarinnar og þekki til starfsemi stéttarfélaga og samtaka þeirra hér á landi.
Nám við Genfarskólann
138
BSRB-húsið við Grettisgötu 89 verður lýst með bleikum lit í október til stuðnings árvekniátaki vegna krabbameins hjá konum. Þá verður merki bandalagsins á vefsíðu þess bleikt út mánuðinn.
Eins og undanfarin 10 ár hefur Krabbameinsfélag Íslands helgað októbermánuði baráttunni gegn krabbameini hjá konum með átakinu Bleika slaufan. Allt söfnunarfé vegna Bleiku slaufunnar rennur til ráðgjafaþjónust
139
Ný rannsókn Hagstofu Íslands staðfestir það sem fyrri rannsóknir sýna, að karlar vinni lengri vinnuviku en konur og rúmlega tvöfalt fleiri konur en karlar vinna hlutastörf. Þrátt fyrir að þetta hafi verið staðan síðustu áratugi hefur lítið sem ekkert verið gert til að bregðast við þessum mun.
Á þeirri tæplega hálfu öld sem liðin er frá því að fjörutíu stunda vinnuvika var lögfest hefur samfélagið tekið miklum breytingum. Ein af þeim breytingum er verulega aukin atvinnuþátttaka kvenna
140
Trúnaðarmannanámskeiðin hjá Félagsmálaskóla alþýðu halda áfram í haust. Trúnaðarmannanámskeið I verður kennt í þremur þrepum. Fyrsta þrepið í september, annað í október og það þriðja í nóvember.
Á námskeiðunum fá þátttakendur fræðslu