201
Verkfallsaðgerðir BSRB hefjast á mánudaginn. Fundur BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga hjá ríkissáttasemjara í dag skilaði engum árangri. Ekki hefur verið boðaður annar fundur í ljósi þess hversu langt ber á milli deiluaðila.
Formaður BSRB segir það vonbrigði að engan samningsvilja sé að skynja af hálfu Sambands íslenskra sveitarfélaga. „Við vonuðumst eftir einhverjum samningstón á þessum fundi en hann var ekki að finna. Það stefnir því enn í umfangsmiklar verkfallsaðgerðir
202
BSRB og ASÍ bjóða til veffundar þar sem kynntar verða niðurstöður spurningakönnunar Vörðu – Rannsóknarstofnun vinnumarkaðarins um stöðu launafólks. Meðal þess sem fram kemur í niðurstöðunum er að ríflega þriðjungur launafólks glímir við erfiða fjárhagsstöðu og hefur fjárhagsstaðan versnað frá síðasta ári.
Fundurinn fer fram miðvikudaginn 19. janúar kl. 13:00 og er öllum opinn. Hægt verður að
203
Trúnaðarmenn hafa veigamiklu hlutverki að gegna. Þeir eru fulltrúar stéttarfélags á vinnustaðnum og þeim ber að gæta að réttindum samstarfsmanna sinna. Hlutverk trúnaðarmanna getur verið krefjandi og er mikilvægt að trúnaðarmenn séu ávallt vel meðvitaðir um réttindi sín og annarra á vinnustaðnum.
Með það að leiðarljósi er trúnaðarmönnum tryggð þau mikilvægu réttindi að geta sótt málþing, fundi, ráðstefnur og námskeið í allt að fimm vinnudaga á ári án skerðingar á reglubundnum launum
204
Ný skýrsla Kjaratölfræðinefndar um kjarasamningslotuna sem hófst vorið 2019 og er senn að ljúka, þróun efnahagsmála og launa verður kynnt fimmtudaginn 28. október næstkomandi.
Um er að ræða haustskýrslu Kjaratölfræðinefndar, sem er samstarfsvettvangur um gerð og hagnýtingu tölfræðigagna um laun og efnahag. BSRB á fulltrúa í nefndinni.
Skýrslan verður kynnt á fjarfundi sem hefst klukkan 10 fimmtudaginn 28. október næstkomandi. Fundinum verður
205
Ýmislegt hefur verið rætt og ritað um opinberra starfsmenn á undanförnum vikum. Hefur því meðal annars verið haldið fram, að opinber rekstur sé að þenjast út með tilheyrandi fjölgun opinberra starfsmanna, og að launaþróun þeirra leiði launamyndun á atvinnumarkaði. Báðar þessar fullyrðingar eiga sér enga stoð.
Laun á almenna markaðnum hærri.
Því hefur einnig verið haldið fram undanfarið að opinberir starfsmenn hafi hækkað í launum mun meira en starfsmenn á almenna markaðnum. Þ
206
mars vegna aðgerða til að stemma stigu við útbreiðslu kórónaveirunnar hér á landi.
Við biðjum gesti í húsinu að virða merkingar um sóttvarnir sem settar hafa verið upp, notast við grímur, halda sig við tveggja metra regluna og vera duglega
207
Á undanförnum vikum hefur mikið verið deilt um virði samkeppniseftirlits fyrir íslenskt samfélag og hagsæld í landinu. Gagnrýnendur Samkeppniseftirlitsins hafa gengið svo langt að tala fyrir varanlegri veikingu stofnunarinnar með tilheyrandi
208
Vegna hertra sóttvarnaraðgerða hefur BSRB-húsinu verið lokað fyrir almennum heimsóknum í ótilgreindan tíma þar til slakað verður á aðgerðum stjórnvalda á nýjan leik.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. Símtölum og tölvupóstum er svarað á skrifstofutíma og hægt er að koma gögnum á Styrktarsjóð BSRB í gegnum vef sjóðsins. Símanúmer og netföng félaga sem starfa í húsinu má finna hér að neðan.
ENGLISH.
The BSRB-house is currently closed to
209
Ný greining sérfræðingahóps verkalýðshreyfingarinnar um áhrif COVID-faraldursins á launafólk eftir atvinnugreinum verður kynnt á veffundi þriðjudaginn 15. desember klukkan 11. Dregin verður upp mynd af áhrifum kófsins 2020 á atvinnugreinar og launafólk í landinu í samanburði við áhrifin af hruni íslenska fjármálakerfisins fyrir rúmum áratug
210
Eftir áralanga baráttu BSRB fyrir styttingu vinnuvikunnar er loksins komið að því vinnutími félagsmanna fari að styttast. Samtal um hvernig eigi að stytta eru farin í gang á fjölmörgum vinnustöðum og á nokkrum vinnustöðum er vinnunni lokið og búið að ákveða útfærsluna.
Styttingin á að taka gildi í síðasta lagi 1. janúar 2021 hjá þeim sem vinna dagvinnu og þar á starfsfólk að taka virkan þátt í því að ákveða útfærsluna. Á vaktavinnustöðum styttist vinnuvikan frá 1. maí 2021 og verður ú
211
Þær samfélagsbreytingar sem eru að verða vegna loftslagsbreytinga, aðgerða til að stemma stigu við henni, sjálfvirknivæðingar og fleiri þátta munu hafa áhrif á neyslu og störf til frambúðar og mikilvægt að tryggja réttlát umskipti vegna þeirra. Þetta kemur fram í umsögn BSRB um 2. útgáfu aðferðaáætlunar stjórnvalda í loftslagsmálum..
BSRB leggur ekk
212
Þar sem dráttur varð á gerð kjarasamninga aðildarfélaga BSRB komu kjarasamningsbundnar hækkanir ekki til greiðslu fyrr en eftir undirritun þeirra. Slíkar greiðslur geta haft áhrif á greiðslur úr ýmsum félagslegum kerfum, til að mynda greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Félagsmenn þurfa sjálfir að hafa samband við sjóðinn og fara fram á endurútreikning.
Flestir kjarasamningar aðildarfélaga BSRB runnu út þann 31. mars 2019. Kjarasamningar við ríkið og sveitarfélög voru gerðir í mars 2020
213
BSRB fordæmir harðlega misnotkun fyrirtækja sem ekki þurfa á aðstoð að halda á úrræðum stjórnvalda vegna COVID-19 heimsfaraldursins. Í ályktun sem stjórn bandalagsins sendi frá sér í morgun er kallað eftir endurgreiðslu frá stöndugum fyrirtækjum sem nýtt hafa úrræðin.
„Úrræðunum er æ
214
foreldrar misauðvelt með að vinna í fjarvinnu heiman frá og eru þar með misvel í stakk búnir til að bregðast við skerðingum á skólastarfi.
„BSRB hefur talað fyrir því að það sé samfélagsleg ábyrgð allra, þar á meðal fyrirtækja og stofnana, að virða
215
Þátttakendur á baráttufundum opinberra starfsmanna um allt land í gær voru með skýr skilaboð fyrir stjórnvöld og sveitarstjórnarfólk og kröfðust kjarasamninga strax. Gríðargóð mæting var á baráttufund í Háskólabíó, sem og á fundi sem haldnir voru á landsbyggðinni og mikill hugur í fundarmönnum.
Tíu mánuðir eru nú liðnir frá því kjarasamningar þorra félagsmanna aðildarfélaga BSRB losnuðu, og það sama á við um fjölmarga félagsmenn BHM og alla félagsmenn Félags íslenskra hjúkrunarfræðing
216
Opinberir starfsmenn sætta sig ekki við áframhaldandi skeytingarleysi viðsemjenda nú þegar tíu mánuðir eru liðnir frá því kjarasamningar losnuðu. Félagar í BSRB, Bandalagi háskólamanna (BHM) og Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) munu fjölmenna á fund í Háskólabíói klukkan 17 í dag til að krefjast þess að ríki og sveitarfélög gangi tafarlaust til samninga við starfsfólk sitt.
Á sama tíma munu félagsmenn BSRB, BHM og Fíh koma saman á baráttufundum víða um land og fylgjast með stre
217
Meðal efnis skýrslunnar er ítarleg umfjöllun um kjarasamninga starfsársins, helstu málefni og verkefni formannaráðs, stjórnar og skrifstofu. Þá er farið yfir helstu verkefni sem unnin hafa verið frá síðasta aðalfundi.
Á meðal þeirra málaflokka sem fjallað er um eru verkefni bandalagsins tengd kjaramálum, húsnæðismálum og leiðréttingu á kjörum kvennastétta svo eitthvað sé nefnt. Þá er farið ítarlega yfir störf bandalagsins bæði hvað varðar málefnastarf og hagsmunagæslu innanlands og ut
218
Nú á dögunum komst Landsréttur að sömu niðurstöðu og Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður komist að í máli starfsmanns sem taldi að ferðatími á vegum vinnu sinnar, til annars áfangastaðar en hefðbundinnar starfsstöðvar í því skyni að inna af hendi störf sín að kröfu atvinnurekanda, eigi að teljast til vinnutíma.
Í málinu hafði flugvirki hjá Samgöngustofu stefnt íslenska ríkinu og sett fram þessa viðurkenningarkröfu. Þannig fór viðkomandi fram á að sá tími frá því hann yfirgaf heimili si
219
Starfsfólk BSRB óskar þér og þínum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári og þakkar þér kærlega samskiptin og samstarfið á árinu sem er að líða.
Skrifstofa BSRB verður lokuð á hefðbundnum frídögum yfir jól og áramót, sem og föstudaginn 27. desember, en verður annars opin eins og venjulega þess á milli
220
Streitustiginn er gagnlegt verkfæri fyrir vinnustaði sem hjálpar til við að búa til sameiginlegt orðfæri um álag og streitu á vinnustaðnum og til að greina hvort streita er til staðar og hversu alvarleg hún er.
Streitustiginn er hluti af