1
Tillögur átakshóps stjórnvalda í húsnæðismálum eru vel unnar og eru gott innlegg í umræðuna að mati BSRB. Ástæða er til að fagna þeirri samstöðu sem hefur náðst um aðgerðir. Nú þurfa stjórnvöld að hafa hraðar hendur og fjármagna tillögurnar og tryggja að þær nái fram að ganga.
Mikilvægt er að f
2
Forsætisráðherra hefur skipað nefnd um úrbætur og nýtingu launatölfræðiupplýsinga eins og ákveðið var á fundum með aðilum vinnumarkaðarins í byrjun árs. Fulltrúi BSRB í nefndinni er Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri bandalagsins.
Vinna nefndarinnar er mikilvægur hlekkur í því samtali sem átt hefur sér stað milli verkalýðshreyfingarinnar, atvinnurekenda og stjórnvalda á síðustu mánuðum. Þar hefur verið lögð þung áhersla á mikilvægi þess að hafa betri launatölfræði sem hægt er að nota
3
Starfshópur sem forsætisráðherra skipaði um málefni kjararáðs leggur til að ráðið verði lagt niður og að laun æðstu embættismanna fylgi þróun launa opinberra starfsmanna.
Starfshópurinn telur að launaákvarðanir kjararáðs hafi ítrekað skapað ósætti og leitt til óróa á vinnumarkaði. Þau viðmið sem kjararáð hafi starfað eftir hafi verið óskýr og ósamrýmanleg og því sé nauðsynlegt að breyta fyrirkomulaginu, að því er fram kemur í
4
Fyrirhugaðar greiðslur Kaupþings á gríðarháum bónusum til nokkurra starfsmanna eru óásættanlegar og eiga ekki við í íslensku samfélagi að mati BSRB. Bandalagið skorar á Alþingi að bregðast við og tryggja að skattaumhverfi hér á landi sé þannig að þeir sem hafa háar tekjur greiði ríflega til samfélagsins. . „Við verðum að læra af þeim mistökum sem gerð voru á árunum fyrir hrun. Ein af þeim mistökum voru að greiða þeim sem sýsla með fjármuni gríðarháar upphæðir í skjóli þess að þeir
5
Heldur hefur þokast í átt að samkomulagi í kjaraviðræðum BSRB við viðsemjendur. Áfanga hefur verið náð í umræðum um styttingu vinnuvikunnar í samtali við ríkið og vonir standa til að sambærileg niðurstaða náist í viðræðum við sveitarfélögin.
Samningseiningar BSRB funduðu fyrir hádegi í dag til að ræða stöðuna í viðræðunum. Á fundinum, sem formenn aðildarfélaga og aðrir sem koma að samningsvinnunni sátu, var ákveðið að halda áfram á þeirri braut sem lagt hefur verið upp með í vinnunni
6
Rætt var um hvort og þá hvenær grípa eigi til aðgerða til að þrýsta á viðsemjendur um gerð kjarasamnings á fundi samningseininga BSRB sem nú er nýlokið. Kjarasamningar þorra aðildarfélaga BSRB hafa verið lausir frá því í apríl 2019 og viðræður gengið afar hægt.
Á fundinum var farið yfir stöðuna í kjarasamningsviðræðunum í heild sinni, en þar er enn mikið á milli samningsaðila og ekkert sem bendir til þess að samningar muni nást á næstunni.
„Okkur þykir skorta verulega upp á sa
7
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, undirritaði í vikunni samkomulag um hlutverk og umgjörð Kjaratölfræðinefndar ásamt fulltrúum stjórnvalda og annarra aðila vinnumarkaðarins.
Á vegum nefndarinnar mun eiga sér stað samstarf heildarsamtaka á vinnumarkaði, ríkis og sveitarfélaga um gerð og hagnýtingu tölfræðigagna um laun og efnahag til undirbúnings og eftirfylgni með kjarasamningum. Nefndinni er ætlað að stuðla að því að aðilar samkomulagsins hafi sameiginlegan skilning á eðli, eig
8
Samningseiningar BSRB funduðu í dag í kjölfar þess að það slitnaði upp úr viðræðum við ríkið í gær. „Fulltrúar aðildarfélaga BSRB eru einhuga um að næsta skref er að vísa deilunni gagnvart ríkinu til ríkissáttasemjara,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.
Fundurinn í dag var gagnlegur og mikil samstaða ríkti þar. „Viðræðurnar við ríkið hafa ekkert þokast undanfarið og því lítið eftir að gera en að vísa deilunni til ríkissáttasemjara. Á fundinum kom skýrt fram að fyrirliggjan
9
Upp úr slitnaði í kjaraviðræðum BSRB við ríkið á fundi í dag og hefur formaður BSRB boðað samningseiningar bandalagsins til fundar á morgun. Á fundinum verður lögð fram tillaga um að kjaradeilunni verði vísað til ríkissáttasemjara.
„Viðræður okkar við ríkið hafa ekkert þokast undanfarið og við munum gera því þá tillögu á fundi samningseininga BSRB á morgun að deilunni verði vísað til ríkissáttasemjara,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.
Á fundi samninganefndar BSRB
10
Hverjir eru þessir óteljandi opinberu starfsmenn sem sitja eins og baggi á íslensku þjóðinni? Að þessu spyrja Samtök atvinnulífsins, þó samtökin orði reyndar spurninguna með aðeins penni hætti. Þau spyrja hvernig standi á því að opinberum starfsmönnum fjölgi meðan launafólki á almennum vinnumarkaði fækki.
Spurningin er ekki sett fram af því þessi hagsmunasamtök stærstu fyrirtækja landsins skorti svarið. Svarið liggur nefnilega í augum uppi. Spurningin er sett fram sem áróðursbragð sem
11
Samkvæmt kjarasamningum BSRB hafa sveitarfélög heimild til þess að bjóða starfsmanni lausnarlaun við tilteknar aðstæður. Algengast er að slíkt sé gert þegar starfsmaður hefur verið frá vinnu jafn lengi og sem nemur tvöföldum veikindarétti hans. Þegar greidd eru lausnarlaun skal greiða laun í þrjá mánuði, og þar með lýkur ráðningarsambandinu. Nýlega þurfti BSRB að berjast fyrir réttum greiðslum til handa félagsmanns, en til stóð að greiða honum lægri fjárhæð en hann átti rétt til samkvæmt kjar
12
Það ætti ekki að hafa farið fram hjá neinum sem fylgst hefur með fréttum að staðan á vinnumarkaði vegna kjarasamningsviðræðna er flókin og viðkvæm. Ástæður þess má meðal annars rekja til þess að launahækkanir síðustu kjarasamninga árið 2015 skiluðu sér ekki með tilætluðum hætti til þeirra tekjulægstu vegna ákvarðana eða athafnaleysis stjórnvalda.
Ástæður þess að góðærið skilaði tekjulágum ekki því sama og þeim tekjuhærri voru einkum þær að skattbyrði þeirra tekjulægri jókst og skerðin
13
Ákvörðun ASÍ um að segja ekki upp kjarasamningum á almennum markaði verður til þess að uppsagnarákvæði í kjarasamningum aðildarfélaga BSRB virkjast ekki.
Í samningum allra aðildarfélaga bandalagsins eru ákvæði um að verði kjarasamningum á almenna vinnumarkaðinum sagt upp geti BSRB sagt upp kjarasamningum sinna félagsmanna í kjölfarið með þriggja mánaða fyrirvara.
Þar sem samningar á almennum vinnumarkaði gilda óbreyttir munu kjarasamningar þorra aðildarfélaga bandalagsins gild
14
Ef við ættum að takast á við það verkefni í dag að ákveða hvernig fyrirkomulag vinnu eigi að vera eftir hálfa öld, árið 2067, er augljóst að hvað sem við ákveðum mun ekki standast tímans tönn. Það er engin leið að sjá fyrir þá þróun sem verður á vinnumarkaði á næstu 50 árum. Það besta sem við gætum gert væri að miða út frá stöðunni í dag og aðlaga okkur að breytingum.
Í því ljósi getum við horft á nærri hálfrar aldar fyrirkomulags 40 stunda vinnuviku. Alveg eins og við í dag eigum eng
15
Laun félagsmanna aðildarfélaga BSRB sem starfa hjá ríkinu verða hækkuð um 1,3 prósent að meðaltali til að bæta þeim upp launaskrið á almennum vinnumarkaði. Hækkunin er afturvirk frá 1. janúar 2017 og ætti að koma til framkvæmdar um næstu mánaðarmót hjá félagsmönnum flestra aðildarfélaga.
BSRB undirritaði samkomulag um launaþróunartryggingu opinberra starfsmanna sem eru
16
Kynbundinn launamunur hefur aukist milli ára hjá félagsmönnum SFR sem starfa hjá ríki og sjálfseignarstofnunum þrátt fyrir áralanga baráttu við að eyða launamuninum. Á sama tíma hefur launamunurinn minnkað verulega hjá
17
Um 1.200 börn eru nú á biðlista eftir plássi á frístundaheimilum borgarinnar með tilheyrandi vinnutapi og álagi fyrir foreldra. Erfiðleikar við að manna frístundaheimilin eru ein birtingarmynd þess að þrátt fyrir mikla áherslu á hækkun lægstu launa þurfa þau að hækka enn meira.
Vandræði við mönnun frístundaheimila eru árviss þegar skólar byrja. Staðan hjá frístundaheimilum Reykjavíkurborgar er svipuð og á sama tíma í fyrra, samkvæmt upplýsingum frá Skóla- og frístundaráði Reykjavíkurb
18
Aldrei verður sátt um það í íslensku samfélagi að lítill hópur einstaklinga fái háar kaupaukagreiðslur eins og tíðkuðust fyrir bankahrunið 2008 að mati formannaráðs BSRB. Í ályktun frá ráðinu er skorað á íslensk fyrir tæki að sýna samfélagslega ábyrgð og hverfa ekki aftur til þess verklags sem átti þátt í hversu illa fór fyrir íslensku samfélagi
19
Í kjölfar lagasetningar á kjaradeilu flugumferðarstjóra og Isavia hljóta stjórnvöld að bregðast við telji þau það ógna almannahagsmunum ef sú stétt vinnur ekki yfirvinnu. Þau þurfa að kanna hver ber ábyrgð á því ófremdarástandi og hvernig hægt er að bæta þar úr án tafar. . „Þetta er einkennileg staða sem við erum komin í,“ segir Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB. Alþingi setti fyrir helgi lög sem banna Félagi íslenskra flugumferðarstjóra að grípa til hvers kyns verkfallsaðgerða
20
Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, var einn gesta Sigurjóns M. Egilssonar í þættinum Þjóðbraut á sjónvarpsstöðinni Hringbraut á sunnudag. Í þættinum var fjallað um ýmis mál sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum, til dæmis lagasetningu Alþingis á aðgerðir Félags íslenskra flugumferðarstjóra í kjaradeilu þeirra við Isavia. . Í þættinum sagði Elín skýrt að flugumferðarstjórar hafi í kjaradeilu sinni unnið eftir sínum kjarasamningum og uppfyllt sína vinnuskyldu. Þeir hafi hins veg