mikilvægari.
Á uppskeruhátíðinni kynnti Tómas Bjarnason, sviðsstjóri stjórnenda- og vinnustaðaráðgjafar Gallup, helstu niðurstöður könnunarinnar. Þar var meðal annars fjallað um mikilvægi fræðslu og sí- og endurmenntunar í ljósi breytinga ... á vinnumarkaði.
Nærri helmingur svarenda segist fá mikla hvatningu frá stjórnendum sínum til að sækja fræðslu og sí- og endurmenntun. Hlutfallið hefur aukist jafnt og þétt frá árinu 2022. Þá sýna niðurstöðurnar að starfsmannasjóðir gegna mikilvægu ... hlutverki við að hvetja starfsfólk til að sækja sér aukna menntun og fræðslu.
Tómas benti á að mörg störf væru að taka miklum breytingum vegna tækniframfara, meðal annars með tilkomu gervigreindar. Því væri mikilvægara en nokkru sinni fyrr ... að stjórnendur hvetji allt starfsfólk til þátttöku í fræðslu, óháð menntun og störfum.
.
Mikilvægt tæki til að bæta starfsumhverfið.
Könnunin Sveitarfélag ársins er samstarfsverkefni 11 bæjarstarfsmannafélaga innan BSRB