221
Mikilvægi opinberrar velferðarþjónustu á sviði heilbrigðis- og félagsmála var ítrekað í starfi nefndar sem íslenska verkalýðshreyfingin átti fulltrúa í á 109 þingi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar – ILO, sem nú er nýlokið.
Þingið var að þessu sinni að mestu haldið rafrænt en þó þannig að formenn samninganefnda voru til staðar í Genf. Magnús M. Norðdahl, lögfræðingur ASÍ, var fulltrúi íslenskrar verkalýðshreyfingar á þinginu og hafði jafnframt verið kjörinn til þess að leiða samninganefn
222
Fjórða iðnbyltingin, nýjar áherslur og áskoranir í menntamálum og innra starf í breyttum heimi eru meðal umfjöllunarefna á Menntadegi BSRB sem fer fram miðvikudaginn 24. mars milli klukkan 10 og 14 undir yfirskriftinni „Til móts við ný tækifæri“.
Fundurinn verður rafrænn og geta þeir sem áhuga hafa fylgst með með því að smella hér..
Dagskrá fundarins
223
Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna bjóða ASÍ, BHM, BSRB, Kennarasamband Íslands og Kvenréttindafélag Íslands til rafræns hádegisfundar 8. mars milli klukkan 12 til 13. Yfirskrift fundarins er „Konur í kafi – kynjajafnrétti á tímum heimsfaraldurs“.
Fundarstjóri er Drífa Snædal, forseti ASÍ. Viðburðurinn verður tekinn upp og aðgengilegur fljótlega eftir fundinn. Fundur verður túlkaður á ensku.
Hlekkur á fundinn og aðrar upplýsingar
224
„Það eru allir mjög ánægðir með þetta og við sem erum byrjuð að stytta vinnuvikuna getum ekki annað en lofað þetta í hástert. Þetta eru þvílík lífsgæði sem við erum að fá,“ segir Egill Kristján Björnsson, trúnaðarmaður Sameykis hjá Fangelsismálastofnun ríkisins á Hólmsheiði.
Fangelsismálastofnun er einn þeirra fyrirmyndarvinnustaða sem þegar hafa innleitt styttingu vinnuvikunnar hjá sínu starfsfólki sem vinnur dagvinnu. Vinnuvika starfsfólksins styttist úr 40 stundum í 36.
Þei
225
Forystukonur ASÍ, BHM og BSRB mótmæla því harðlega að fjármálaráðherra ætli ekki að hafa fulltrúa launafólks með í ráðum við mat á efnahagslegum áhrifum valkosta í sóttvarnarmálum. . Við köllum eftir því að starfshópur fjármálaráðherra sem vinna mun reglulegar greiningar á efnahagslegum áhrifum valkosta í sóttvarnarmálum verði breikkaður þannig að sjónarmið fleiri en atvinnurekenda fái að koma þar fram. Það er gamaldags viðhorf að efnahagsmál snúist fyrst og fremst um fyrirtæki en
226
Dæmi eru um að atvinnurekendur hafi lækkað starfshlutfall starfsmanna en krefjist vinnuframlags umfram hið nýja hlutfall. Ábendingar um þetta hafa borist BHM og BSRB, sem og aðildarfélögum bandalaganna, að því er fram kemur í sameiginlegri yfirlýsingu frá bandalögunum tveimur.
Þetta gengur þvert gegn lagabreytingum sem Alþingi gerði nýverið til að auðvelda atvinnurekendum að halda starfsfólki og koma í veg fyrir uppsagnir vegna þeirra aðstæðna sem skapast hafa af völdum COVID-19 heims
227
Fyrirtæki geta nú lækkað starfshlutfall starfsmanna allt niður í 25 prósent og starfsmenn fengið atvinnuleysisbætur á móti eftir að Alþingi samþykkti lagabreytingar til að bregðast við heimsfaraldri kórónaveirunnar.
Breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar og lögum um Ábyrgðarsjóð launa tóku gildi þann 20. mars 2020. Markmiðið með þeim var að stuðla að því að atvinnurekendur haldi ráðningarsambandi við starfsmenn sína eins og frekast er unnt, enda þótt það kunni að vera nauðsynle
228
Starfsmenn sem þurfa að vera í sóttkví vegna COVID-19 faraldursins fá laun frá opinberum launagreiðendum, hvort sem þeir reynast vera með sjúkdóminn eða ekki. BSRB hvetur alla til að kynna sér einkenni veirunnar og gera allt sem hægt er til að draga úr líkum á smiti.
Útbreiðsla COVID-19 hefur verið hröð á heimsvísu og hafa heilbrigðisyfirvöld beint þeim fyrirmælum til fólks sem hefur mögulega komist í snertingu við veiruna eða smitaða einstaklinga að vera í sóttkví í 14 daga. Þetta er
229
Tæknibreytingar síðustu ára og áratuga hafa nú þegar haft margvísleg áhrif á vinnu fólks. Öll erum við með farsíma í lófanum eða vasanum flestum stundum og margir eru með aðgang að tölvupósti og öðrum kerfum sem tengjast vinnu viðkomandi í gegnum símann. Þannig hafa skilin milli vinnu og einkalífs í mörgum tilvikum máðst út. Áður skildi fólk vinnuna eftir í vinnunni en fyrir marga er sá veruleiki breyttur.
Flest ákvæði kjarasamnings eru komin til ára sinna og mörg skrifuð áður en síma
230
Bjarg íbúðafélag hefur opnað fyrir umsóknir um íbúðir á fjórum nýjum stöðum; á Hallgerðargötu við Kirkjusand, í Hraunbæ og Silfratjörn i Úlfarsárdal auk Gudmannshaga á Akureyri. Íbúðirnar voru auglýstar lausar til umsóknar um helgina..
Þeir sem hafa áhuga á að leigja íbúðir á þessum stöðum þurfa að senda inn umsókn
231
Hinn 23. febrúar sl. féll dómur í héraðsdómi Reykjavíkur þar sem íslenska ríkinu var gert að greiða félagsmanni innan Félags starfsmanna Stjórnarráðsins (FSS), sem er eitt af aðildarfélögum BSRB, orlofslaun á fastar yfirvinnugreiðslur hans auk dráttarvaxta og málskostnaðar.
Forsaga málsins er sú að stefnandi starfar hjá þjónustuskrifstofu Stjórnarráðsins sem bílstjóri ráðherra. Starfa sinnar vegna þarf viðkomandi iðulega að sinna störfum utan hefðbundins
232
Formannaráð BSRB skorar á stjórnvöld að semja án frekari tafa um styttingu vinnuvikunnar án launaskerðingar í þeim kjarasamningsviðræðum sem nú eru í gangi og ganga þannig á undan með góðu fordæmi á vinnumarkaði.
Í ályktun formannaráðsins, sem samþykkt var á fundi ráðsins sem enn stendur yfir, er bent á að kjarasamningar þorra félagsmanna bandalagsins hafa verið lausir frá því í byrjun apríl. Óásættanlegt sé hversu hægt hafi gengið í viðræðum um nýjan kjarasamning.
„Formannará
233
Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars bjóða ASÍ, BHM, BSRB, Kvenréttindafélag Íslands, Jafnréttisstofa, Kennarasamband Íslands og Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja til hádegisverðarfundar 7. mars. Yfirskrift fundarins er Þegar konur segja frá - #metoo og kraftur samstöðunnar.
Vegna boðaðs verkfalls Eflingar þann 8. mars verður fundurinn haldinn fimmtudaginn 7. mars milli klukkan 12 og 13. Hann mun fara fram á Grand hóteli í salnum Háteigi.
Dagskrá fundarins
234
Bjarg íbúðafélag hefur samið við Modulus um byggingu 33 íbúða í þremur nýjum húsum sem rísa munu á Akranesi. Stefnt er að því að íbúðirnar verði tilbúnar og afhentar íbúum næsta vor eða sumar.
Húsin verða einingahús sem Modulus hefur sérhæft sig í og því hægt að reisa þau hraðar en önnur hús sem nú eru í hönnun eða byggingu hjá Bjargi. Gangi áætlanir eftir gætu fyrstu íbúar flutt inn í húsin á Akranesi í byrjun jú
235
Forsvarsmenn Bjargs íbúðafélags og Akranesbæjar skrifuðu í gær undir viljayfirlýsingu um byggingu 33 íbúða við Asparskóga á Akranes. Lítið framboð hefur verið á leiguíbúðum í bænum að sögn bæjarstjóra.
Með viljayfirlýsingunni veitir Akraneskaupstaður Bjargi íbúðafélagi vilyrði um úthlutun á lóðum að Asparskógum 12, 14 og 16.
„Með undirritun yfirlýsingarinnar er stór skref stigið í að mæta íbúum Akraness með fjölgun leiguíbúða en lítið framboð hefur verið af slíkum síðastliðin
236
SÁÁ þarf að greiða fyrrverandi starfsmanni og félagsmanni í SFR – stéttarfélagi í almannaþágu alls 4,8 milljónir króna í skaðabætur, miskabætur og lögfræðikostnað vegna ólögmætrar uppsagnar samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp í dag.
Starfsstöð starfsmannsins var á Akureyri en honum var tilkynnt að til stæði að færa hann til í starfi á starfsstöð SÁÁ í Reykjavík án rökstuðnings. Héraðsdómur féllst á a
237
Samkvæmt kjarakönnun BSRB telja 26,5% félagsmanna það líklegt að þeir myndu velja að leigja húsnæði til frambúðar frekar en að kaupa ef búseta þeirra væri tryggð í leiguhúsnæðinu. Það verður að teljast dágóður fjöldi þegar staðreyndin er sú að tæplega 85% félagsmanna BSRB búa í eigin húsnæði í dag.
Þegar hópurinn sem í dag býr í eigin húsnæði er skoða
238
Í dag, 7. október, standa ITUC - Alþjóðasamtök stéttarfélaga, fyrir Alþjóðlegum baráttudegi fyrir mannsæmandi vinnu. Dagurinn í ár er helgaður baráttu milljónum launafólks um allan heim fyrir betri launakjörum.
Í yfirlýsingu samtakanna segir meðal annars að mikil verðbólga, hátt verðlag matvæla og annara nauðsynja dæmi sífellt fleiri til fátæktar. Starfsemi verkalýðsfélaga séu settar skorður og með því gengið á rétt launafólks í baráttunni fyrir betri kjörum.
Alþjóðasamtök ver
239
Sonja Ýr Þorbergsdóttir var í dag endurkjörin formaður BSRB til næstu þriggja ára á 46. þingi BSRB með 97,22 prósent greiddra atkvæða. Þingið, sem nú er nýlokið, var rafrænt vegna sóttvarnaraðgerða þegar það var boðað og var allri málefnavinnu sem til stóð að fara í á þinginu frestað þar til á framhaldsþingi.
Sonja var ein í framboði til formanns, en hún var fyrst kjörin formaður bandalagsins á 45. þingi BSRB í október 2018. Á þinginu var Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis, kjörinn í
240
Nær tveir af hverjum þremur starfsmönnum ríkis og sveitarfélaga upplifa aukið álag eftir að heimsfaraldur kórónaveirunnar skall á landinu af fullum þunga. Þetta sýnir könnun sem rannsóknarfyrirtækið Maskina gerði fyrir BSRB.
Alls sögðu tæplega 64 prósent opinberra starfsmanna að álag í starfi hafi aukist nokkuð eða mjög mikið vegna faraldursins í byrjun árs 2021. Þetta er talsverð aukning frá því í samskonar könnun sem gerð var í apríl 2020 þegar rúmur helmingur opinberra starfsmanna