BSRB gagnrýnir harðlega þá aðhaldsstefnu sem birtist í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2027. Bandalagið mótmælir sérstaklega illa rökstuddum áformum um fækkun ríkisstarfsmanna, niðurskurði í almannaþjónustu og skerðingu á stuðningi við heimilin. Í umsögn BSRB er kallað eftir stefnubreytingu þar sem uppbygging öflugrar almannaþjónustu og velferðarkerfis verði sett í forgang.
Í sameiginlegri ályktun þingsins, sem ber yfirskriftina „Enginn viðbúnaður án launafólks“, er skorað á ríkisstjórnir Norðurlandanna og Norrænu ráðherranefndina að tryggja að aðilar vinnumarkaðarins fái skýrt hlutverk í norrænu samstarfi um viðbúnað og birgðaöryggi.
Formannaráð BSRB mótmælir harðlega fjöldauppsögnum hjá Reykjavíkurborg og varar við því að þær muni leiða til verulegrar skerðingar á þjónustu, ekki síst við börn, ungmenni og fólk í viðkvæmri stöðu
Trúnaðarmenn gegna lykilhlutverki á vinnumarkaði. Þeir standa vörð um réttindi samstarfsfólks, miðla upplýsingum og eru mikilvægur tengiliður milli starfsfólks, stéttarfélaga og stjórnenda
Það er því engin breyting á okkar kjarasamningum í dag. Þeir eru í gildi og áfram verður unnið að því að verja kjör félagsfólks og bregðast við þeirri stöðu sem upp er komin.