81
eftir faraldurinn,“ sagði Sonja.
46. þingi BSRB var frestað síðasta haust þar sem samkomutakmarkanir komu í veg fyrir að hægt væri að koma saman. Á framhaldsþinginu verður farið í málefnastarf og stefna BSRB endurnýjuð.
„Þessi vinna verður
82
Það eru miklar breytingar framundan hjá starfsfólki á vinnumarkaði sem er með litla formlega menntun nú þegar samfélagið er að sigla inn í fjórðu iðnbyltinguna. Þess vegna þarf að leggja markvissa vinnu í að efla og styrkja þennan hóp og þar skiptir framhaldsfræðslan höfuðmáli.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í pistli sem Karl Rúnar Þórsson, formaður Starfsmann
83
Lögreglumenn hafa nú samþykkt kjarasamning Landssambands lögreglumanna við ríkið með rúmlega 59 prósentum greiddra atkvæða. Þar með hafa öll aðildarfélög BSRB náð kjarasamningi við stærstu viðsemjendur, ríki og sveitarfélög.
Eins og fram kemur í frétt á vef Landssambands lögreglumanna var kjarasamningur landssambandsins undirritaður þan
84
Aðildarfélög BSRB sem boðað höfðu til verkfallsaðgerða undirrituðu öll kjarasamninga við viðsemjendur í gærkvöldi og nótt og var verkfallsaðgerðum því aflýst. Fjögur aðildarfélög bandalagsins eiga enn eftir að ná samningum.
Samningarnir eru afturvirkir frá 1. apríl 2019 og gilda út 31. mars 2023. Þau félög sem nú hafa undirritað samninga eru: Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi, Félag opinberra starfsmanna á Vestfjörðum, FOSS, stéttarfélag í almannaþjónustu, Kjölur – stéttarféla
85
Boðið verður upp á námskeið um lífeyrismál við starfslok fyrir sjóðfélaga Brúar lífeyrissjóðs og Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar miðvikudaginn 29. janúar næst komandi. Námskeiðið verður haldið í húsakynnum Brúar lífeyrissjóðs að Sigtúni 42.
Á námskeiðinu verður farið almennt yfir helstu réttindi sjóðfélaga, sýnt hvar upplýsingar um lífeyrisréttindi er að finna og spurningum svarað sem brenna á sjóðfélögum um lífeyrismál.
Brú lífeyrissjóður rekur þrjár ólíkar deildi
86
hvar.
.
.
.
Reykjavík .
Safnast saman á Hlemmi kl. 13.
Kröfugangan leggur af stað kl. 13:30. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur spila í göngunni og á Ingólfstorgi.
Útifundur á Ingólfstorgi Kl. 14.10, fundarstjóri Þórarinn Eyfjörð ...
Baráttudagur verkalýðsins verður haldinn hátíðlegur um allt land þann 1. maí. Fjölbreytt baráttudagskrá hefur verið skipulögð um land allt og hér á eftir fara.
Stykkishólmur .
Dagskráin hefst kl. 13:30 á Hótel stykkishólmi.
Kynnir: Einar Strand.
Ræðumaður: Sigurður A Guðmundsson formaður Vlf. Snæfellinga.
Daníel Örn Sigurðsson töframaður .
Helgi Björnsson ásamt gítarleikara .
Lúðrasveit.
Ísafjörður .
Lagt verður af stað frá Baldurshúsinu, Pólgötu 2 kl. 11:00. Gengið verður að Pollgötu og þaðan niður að Edinborgarhúsi með Lúðrasveitina í fararbroddi.
Ræðumaður dagsins: Ólafía B. Rafnsdóttir formaður VR.
Tónlistaratriði.
Bolungarvík .
Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur býður í kaffi og kökur í félagsheimili Bolungarvíkur.
8. og 9. bekkur Grunnskóla Bolungarvíkur sér um kaffiveitingar.
Tónlistaskóli Bolungarvíkur sér um tónlist og söng.
Laddawan
87
Til hamingju með daginn!.
Á þessum degi fyrir 44 árum lögðu konur niður launuð sem ólaunuð störf til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags kvenna. Samstaða kvenna skilaði mikilvægum breytingum í átt að jafnrétti. En þrátt fyrir að samfélagið hafi breyst verulega á nærri hálfri öld er enn stór hópur kvenna sem býr við launakjör sem duga engan veginn til framfærslu, óásættanlegt starfsumhverfi, vanvirðingu á framlagi þeirra og of langa vinnuviku.
Í dag viljum við beina kastljósi
88
Upp úr slitnaði í kjaraviðræðum BSRB við ríkið á fundi í dag og hefur formaður BSRB boðað samningseiningar bandalagsins til fundar á morgun. Á fundinum verður lögð fram tillaga um að kjaradeilunni verði vísað til ríkissáttasemjara.
„Viðræður okkar við ríkið hafa ekkert þokast undanfarið og við munum gera því þá tillögu á fundi samningseininga BSRB á morgun að deilunni verði vísað til ríkissáttasemjara,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.
Á fundi samninganefndar BSRB
89
Bestu leiðirnar til að bregðast við því að fæðingartíðni hér á landi er í sögulegu lágmarki er að lengja fæðingarorlofið og hækka þak á greiðslur í fæðingarorlofi, auk þess að tryggja börnum dagvistun strax að orlofi loknu. Þetta kemur fram í umfjöllun Fréttablaðsins um fæðingartíðni.
Fæðingartíðni á Íslandi hefur í sögulegu samhengi almennt verið há miðað við önnur Evrópulönd, eða um tvö börn á hverja konu. Nú horfir til verri vegar og er fæðingartíðnin í sögulegu lágmarki, á milli 1
90
BSRB varar við því að aukið verði við einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu enda yrði það í algerri andstöðu við vilja mikils meirihluta þjóðarinnar. Í nýsamþykktri ályktun aðalfundar bandalagsins er bent á að einkarekstur dragi ekki úr kostnaði hins opinbera við heilbrigðisþjónustuna og torveldi stjórnvöldum að forgangsraða og skipuleggja heilbrigðiskerfið í þágu almannahagsmuna.
„Við megum ekki láta skammtímahagsmuni ráða þegar kemur að því að byggja upp heilbrigðiskerfi sem á að þjóna
91
Það er mjög algengt að ekki sé brugðist við kvörtunum um kynferðislega áreitni innan vinnustaða, segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, lögfræðingur BSRB, í forsíðuviðtali við Mannlíf í dag.
Sonja segir að BSRB hafi ekki fengið mjög mörg mál til umfjöllunar, en það geti helgast af því að fólk hafi ekki vitneskju um hvert það geti leitað. Hún segir eitt af verstu málunum sem hún hafi fengið til umfjö
92
Ríkissáttasemjari hefur nú bætt við einni námstefnu til viðbótar í samningagerð til að tryggja að sem flestir fulltrúar stéttarfélags sem sæti eiga í samninganefndum geti setið námstefnurnar.
Enn er því hægt að skrá sig til þátttöku annað hvort dagana 15.-17. október (sem er trúlega ekki góð dagsetning fyrir okkar fólk þar sem þing BSRB hefst þann 17. október) eða dagana 19.-21. nóvember.
Á námstefnunum verður stefnt saman öllum sem sæti eiga í samninganefndum og vinna að kjar
93
Brú lífeyrissjóður heldur námskeið um lífeyrisréttindi við starfslok fyrir sjóðfélaga Brúar lífeyrissjóðs, Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar og Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar í húsakynnum sjóðsins, Sigtúni 42, Reykjavík, miðvikudaginn 11. apríl.
Á námskeiðinu verður farið almennt yfir helstu lífeyrisréttindi sjóðfélaga, hvar upplýsingar um réttindi er að finna og spurningum svarað sem brenna á sjóðfélögum um lífeyrismál.
Brú lífeyrissjóður rekur þrjár ólíkar
94
Mikill munur er á þeim dagvistunarúrræðum sem foreldrar njóta milli sveitarfélaga og ekki ríkir jafnræði í þjónustu við börn að loknu fæðingarorlofi. Könnun BSRB sýnir að börn á Íslandi eru að jafnaði um 20 mánaða gömul þegar þau komast inn á leikskóla en samanlagt fæðingarorlof beggja foreldra er níu mánuðir.
Nefnd BSRB um fjölskylduvænna samfélag aflaði upplýsinga um stöðu dagvistunarmála að loknu fæðingarorlofi hjá sveitarfélögunum í landinu og hefur nú
95
Aðalfundur BSRB varar við því að gerðar verði ómarkvissar breytingar á starfsnámi með sameiningu Fjölbrautarskólans við Ármúla (FÁ) og Tækniskólans. Vinna þarf að stefnumótun vegna starfsnáms í víðara samhengi með samráði við hagsmunaaðila með eflingu starfsnáms að markmiði, að því er fram kemur í ályktun aðalfundar BSRB.
Þar er jafnframt varað við einkavæðingu náms á framhaldsskólastigi með sameiningu FÁ, sem er skóli í opinberum rekstri, og Tækniskólanum, sem er einkarekinn skóli. V
96
til að tilraunin nái til fleiri starfsstöðva borgarinnar og verður slík tillaga lögð fram á næstu vikum. Jafnframt er lagt til að farið verði í samstarf við háskólasamfélagið um frekari rannsóknir, þar á meðal að kanna áhrif verkefnisins á heimilishald ... og fjölskylduaðstæður. Enn fremur verði óskað eftir samstarfi við starfshóp ríkisstjórnarinnar um tilraunaverkefni um styttingu vinnuvikunnar sem senn hefur störf. . Ríki, sveitarfélög og stéttarfélög eiga að hjálpast að því styttri vinnuvika er hagur okkar
97
Umboðsmaður Evrópusambandsins (European Ombudsman) gagnrýnir framkvæmdastjórn ESB harðlega fyrir málsmeðferð þeirra varðandi IPA samning Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og ESB. Samningnum var rift þegar aðildarviðræður Íslands voru stöðvaðar. Umboðsmaður hefur beint þeim tilmælum til Evrópusambandsins að það standi við samninginn enda sé framferði framkvæmdastjórnarinnar óásættanlegt og grafi undan þeim gildum sem byggja skuli á. .
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hlaut IPA styrk
98
Meirihluti bæjarstarfsmannafélaga innan BSRB hefur nú undirritað nýja kjarasamninga við Samninganefnd ríkisins. Nú síðast skrifaði FOSS, Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi, undir nýjan kjarasamning við ríkið en það gerðist seinnipartinn í gær. Samningurinn nær til félagsmanna FOSS sem starfa hjá ríkinu. Kjarasamningurinn er sambærilegur þeim sem önnur bæjarstarfsmannafélög BSRB hafa gert við ríkið á síðustu dögum..
99
„Þetta ferli gekk í rauninni ótrúlega vel, en samt er alltaf áhugavert þegar starfsfólk tekur samtalið og fer að vega og meta hvernig best er að vinna úr þessu,“ segir Katrín Björg Ríkarðsdóttir, framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu. Eftir ítarlegt undirbúningsferli er stytting vinnuvikunnar að komast til framkvæmda á vinnustaðnum um þessar mundir.
Undirbúningsvinna fyrir styttingu vinnuvikunnar hjá Jafnréttisstofu hófst í apríl, stuttu eftir að samið var um styttingu í kjarasamningum, og
100
Ný greining sérfræðingahóps verkalýðshreyfingarinnar um áhrif COVID-faraldursins á launafólk eftir atvinnugreinum verður kynnt á veffundi þriðjudaginn 15. desember klukkan 11. Dregin verður upp mynd af áhrifum kófsins 2020 á atvinnugreinar og launafólk í landinu í samanburði við áhrifin af hruni íslenska fjármálakerfisins fyrir rúmum áratug