1
Rætt verður um framtíðina á vinnumarkaði á ráðstefnunni Framtíð vinnunnar sem Norræna ráðherranefndin og Alþjóðavinnumálastofnunin (ILO) halda í Hörpu dagana 4. og 5. apríl næstkomandi.
Á ráðstefnunni verður meðal annars fjallað um niðurstöður alþjóðlegrar nefndar u
2
Framhaldsþing BSRB fer fram á Hilton Reykjavík Nordica dagana 24.-25. mars nk. Um er að ræða framhald á 46. þingi bandalagsins sem var sett í lok september á síðasta ári en vegna sóttvarnartakmarkana var hluta þingsins frestað. Á þinginu í haust var meðal annars fjallað um skýrslu stjórnar, lagabreytingar samþykktar auk þess sem ný stjórn var kjörin.
Sá dagskrárhluti sem eftir stendur snýr að stefnumótunarvinnu bandalagsins en allt starf BSRB grundvallast á þeirri stefnu sem mótuð er
3
Fjórða Kvennaþing Alþjóðasambands verkalýðsfélaga (ITUC) fór fram í Melbourne Ástralíu í gær. Í dag hófst svo þing ITUC sem stendur yfir í sex daga. Kvennaþingið er mikilvægur vettvangur kvenna innan verkalýðshreyfingarinnar á heimsvísu til að ræða og skipuleggja aðgerðir í þágu jafnréttis kynjanna, heilsujöfnuðar ásamt efnahagslegum og félagslegum jöfnuði.
Þingin fara fram í kjölfar heimsfaraldurs kórónaveiru. Faraldurinn hefur varpað ljósi á ójafna stöðu kynjanna á vinnumarkaði og ó
4
Í vor verður boðið upp á skemmtilega og fjölbreytta dagskrá í Forystufræðslunni. Námskeiðin eru fjögur og taka á mjög ólíkum þáttum sem allir nýtast vel í starfi. Smelltu á nafn námskeiðs til að fá nánari upplýsingar og skrá þig til þátttöku.
5
Friðarganga hefur verið fastur liður í Reykjavík frá árinu 1981 á Þorláksmessu. Gengið er frá Hlemmi og fer gangan að þessu sinni af stað á slaginu kl. 18..
Fólk er hvatt til að ganga með kerti í hönd en göngunni er ætlað að leggja áherslu á kröfuna um frið í heiminum. Í göngulok er fundur á Austurvelli þar sem Andri Snær Magnason rithöfundur flytur ávarp. Fundarstjóri v
6
Loftlagsgangan í Reykjavík fer fram næsta sunnudag, þann 29. nóvember, göngum við Loftslagsgönguna í Reykjavík. Gangan er hluti af alþjóðlegri hreyfingu, Global Climate March, og ein af ríflega 1.500 göngum sem gengnar verða víða um heim sama dag. .
Markmiðið er að krefja þau ríki sem sækja loftslagsfund Sameinuðu þjóðanna, sem hefst í París degi síðar, um að koma í veg fyrir hætt
7
Baráttufundur SFR, SLFÍ og LL fyrir fyrir bættum kjörum fer fram á morgun, þriðjudag kl. 17:00 í Háskólabíói. Félögin sem um ræðir eru þrjú fjölmennustu aðildarfélög BSRB sem semja við ríkið og fram til þessa hafa stjórnvöld hafnað því að félagsmenn SFR, SLFÍ og LL fái sambærilegar kjarabætur og sérfræðingar og hálaunafólk, sem starfar hjá ríkinu. Þeir sem eru á lægri launum eiga að sætta sig við einungis hluta í stað sambærilegra kjarabóta.
Félagsmenn BSRB eru hvattir til að mæ
8
Sjúkraliðafélag Íslands, SFR- stéttarfélag í almannaþjónustu og Landssamband lögreglumanna efna til baráttu- og kynningarfundar þriðjudaginn 15. september, kl. 17.00 í Háskólabíói. BSRB hvetur alla félagsmenn sína til að sýna stuðning í verki með því að taka þátt í baráttufundinum.
Ekkert hefur þokast í samningsátt í viðræðum stéttarfélaganna við samninganefnd ríkisins og eftir síðasta fund sá ríkissáttasemjari ekki ástæðu til að boða til nýs fundar. Í ljósi þessarar erfiðu stöðu
9
Verkfallsaðgerðum félaga SFR stéttarfélags, Félags flugmálastarfsmanna (FFR) og Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) sem boðaðar höfðu verið snemma í morgun er lokið, en gripið var til þessara aðgerða til að undirstrika kröfur félaganna í sameiginlegum kjaraviðræðum við Isavia. Félögin hafa boðað fleiri sambærilegar aðgerðir næstu vikur ef ekki semst..
Það voru
10
Á haustþingi voru lögð fram fjölmörg frumvörp sem sneru að skattamálum og urðu flest þeirra að lögum í lok ársins. Á vef fjármálaráðuneytisins er farið yfir helstu efnisbreytingar sem í þeim fólust..
Ýmsar breytingar voru samþykktar á tekjuskattlagningu einstaklinga. Skatthlutfall ríkisins í skattþrepi 2 var lækkað um 0,5 prósentustig, eða úr 25,8% í
11
Starfsfólk í verkfalli fjölmenntu á baráttufundi BSRB í Bæjarbíó Hafnarfirði, Hótel Selfossi, Kaffi Krók og víðar til að stilla saman strengi og láta blása sér baráttuanda í brjóst.
Beint streymi var frá Bæjarbíói þar sem hlustað var á stuttar hugvekjur Anítu Óskar Georgsdóttur og Magdalenu Önnu Reimus, sem eru í verkfalli um þessar mundir, og ávarp Sonju Þorbergsdóttur formanns BSRB. Tónlistarfólkið Friðrik Dór, Bóas og Lilja og Lúðrasveit verkalýðsins hélt uppi stemningu á milli ræð
12
Í vor verða liðin 40 ár frá stofnun Kvennalistans. Af því tilefni buðu Kvennalistakonur til opins kvennaþings þar sem staða kvenna í íslensku þjóðfélagi var rædd..
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, hélt erindi á fundinum undir yfirskriftinni „Fjárhagslegt sjálfstæði kvenna?”. . Hún minnti á að stærsta skrefið sem við getum tekið í átt að fullu jafnrétti kynjanna sé ót
13
Til hamingju með daginn!.
Á þessum degi fyrir 47 árum lögðu konur niður launuð sem ólaunuð störf til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags kvenna. Þessi ríka kvennasamstaða hefur skilað mörgum mikilvægum áföngum í átt að auknu jafnrétti en staða kynjanna er engu að síður enn ójöfn. Þrátt fyrir áratugalanga baráttu, verulegar samfélagslegar og tæknilegar breytingar búum við enn í samfélagi þar sem framlag kvenna til samfélagsins er að mör
14
Nú styttist í að trúnaðarmannanám BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu hefjist.
Í september hefst kennsla á 1. hluta trúnaðarmannanámsins. Á námskeiðinu er meðal annars farið ítarlega í hlutverk stéttarfélaga, sambanda og heildarsamtaka á vinnumarkaði. Einnig er hlutverk trúnaðarmannsins rætt og hvernig hann eigi að vinna með umkvartanir.
Kennt er í fjarkennslu dagana 21. og 22. september kl. 9.00 – 14.30. Skráningu lýkur 14. september kl. 16.00. Sjá nánar
15
Mikill áhugi er meðal félagsmanna aðildarfélaga BSRB og Alþýðusambands Íslands á íbúðum sem Bjarg íbúðafélag mun leigja tekjulágu fólki á vinnumarkaði. Í lok júlí höfðu alls 818 umsóknir borist félaginu.
Skráning á biðlista hófst þann 15. maí. Allar umsóknir sem bárust fyrir lok júlí voru settar í pott og dregið um röð þeirra á biðlista. Þetta var gert til að gæta jafnræðis þar sem reiknað var með að einhvern tíma myndi taka að koma upplýsingum um að opnað hefði verið fyrir umsóknir t
16
Í síðustu kjarasamningum náðum við hjá Sameyki stéttarfélag og önnur aðildarfélög BSRB þeim langþráða áfanga að stytta vinnuvikuna niður í 36 klst. í dagvinnu og allt að 32 stundum í vaktavinnu hjá þeim sem vinna erfiðustu vaktirnar. Þessum áfanga ber sannarlega að fagna og það höfum við gert síðan með því að upplýsa félagsfólk um hvernig megi útfæra þessa kjarabót sem best.
Stytting vinnuvikunnar er fagnaðarefni á hverjum vinnustað og við sem samfélag ættum að nálgast hana sem slíka
17
Það er með öllu óásættanlegt að enn og aftur þurfi að grípa til harkalegs niðurskurðar á Landspítalanum og grafa þannig undan heilbrigðiskerfinu, að mati BSRB. Stjórnvöld verða að grípa til aðgerða til að leiðrétta stöðu spítalans og draga úr því gríðarlega álagi sem verið hefur á starfsfólk hans.
Forstjóri Landspítalans hefur sagt að spítalann vanti um 3 milljarða króna til að viðhalda óbreyttum rekstri og því þurfi bæði að fækka starfsfólki og lækka laun. Staða spítalans var grafalv
18
BSRB stendur fyrir morgunverðarfundi um barnabætur á Íslandi miðvikudaginn 4. desember næstkomandi. Þar mun Kolbeinn Stefánsson, doktor í félagsfræði, kynna nýja skýrslu um barnabótakerfið á Íslandi sem hann vann fyrir BSRB.
Fundurinn verður haldinn í Hvammi á Grand hótel. Boðið verður upp á morgunverð frá klukkan 8 en fundurinn hefst klukkan 8:30 og lýkur ekki seinna en klukkan 10. Aðgangur að fundinum er ókeypis.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, mun opna fundinn með s
19
Í tilefni aldarafmælis LSR verður haldinn opinn morgunverðarfundur á Hilton Reykjavik Nordica á afmælisdegi sjóðsins, þann 28. nóvember næstkomandi. Þar verður meðal annars fjallað um sjálfbærar fjárfestingar og mikilvægi samtryggingar.
Dagskráin verður fjölbreytt með áherslu á framtíðina en við skoðum einnig 100 ára sögu LSR. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mun flytja ávarp og Philip Ripman, sjóðsstjóri hjá Stor
20
Alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins verður fagnað á morgun, 1. maí með hátíðardagskrá, kröfugöngum og baráttufundum víða um land. BSRB hvetur allt launafólk til að fjölmenna í sínu bæjarfélagi.
Fulltrúar BSRB munu taka þátt í hátíðarhöldunum. Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, verður annar ræðumanna á baráttufundi á Ingólfstorgi og Magnús Már Guðmundsson, framkvæmdastjóri bandalagsins, ávarpar baráttufund í Árborg. Þá mun Arna Jakobína Björnsdóttir, 2. varaformaður BSRB, ávarpa