181
BSRB fordæmir harðlega misnotkun fyrirtækja sem ekki þurfa á aðstoð að halda á úrræðum stjórnvalda vegna COVID-19 heimsfaraldursins. Í ályktun sem stjórn bandalagsins sendi frá sér í morgun er kallað eftir endurgreiðslu frá stöndugum fyrirtækjum sem nýtt hafa úrræðin.
„Úrræðunum er æ
182
BSRB kallar eftir því að foreldrar barna sem þurfa að vera frá vinnu vegna skerðinga á skólastarfi eða vegna þess að barn viðkomandi sé í sóttkví fái rétt til tímabundinna greiðslna frá ríkinu rétt eins og fólk sem þarf að vera í sóttkví, í umsögn sem send hefur verið Alþingi.
Í umsögn bandalagsins um frumvarp um
183
Þátttakendur á baráttufundum opinberra starfsmanna um allt land í gær voru með skýr skilaboð fyrir stjórnvöld og sveitarstjórnarfólk og kröfðust kjarasamninga strax. Gríðargóð mæting var á baráttufund í Háskólabíó, sem og á fundi sem haldnir voru á landsbyggðinni og mikill hugur í fundarmönnum.
Tíu mánuðir eru nú liðnir frá því kjarasamningar þorra félagsmanna aðildarfélaga BSRB losnuðu, og það sama á við um fjölmarga félagsmenn BHM og alla félagsmenn Félags íslenskra hjúkrunarfræðing
184
Opinberir starfsmenn sætta sig ekki við áframhaldandi skeytingarleysi viðsemjenda nú þegar tíu mánuðir eru liðnir frá því kjarasamningar losnuðu. Félagar í BSRB, Bandalagi háskólamanna (BHM) og Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) munu fjölmenna á fund í Háskólabíói klukkan 17 í dag til að krefjast þess að ríki og sveitarfélög gangi tafarlaust til samninga við starfsfólk sitt.
Á sama tíma munu félagsmenn BSRB, BHM og Fíh koma saman á baráttufundum víða um land og fylgjast með stre
185
Meðal efnis skýrslunnar er ítarleg umfjöllun um kjarasamninga starfsársins, helstu málefni og verkefni formannaráðs, stjórnar og skrifstofu. Þá er farið yfir helstu verkefni sem unnin hafa verið frá síðasta aðalfundi.
Á meðal þeirra málaflokka sem fjallað er um eru verkefni bandalagsins tengd kjaramálum, húsnæðismálum og leiðréttingu á kjörum kvennastétta svo eitthvað sé nefnt. Þá er farið ítarlega yfir störf bandalagsins bæði hvað varðar málefnastarf og hagsmunagæslu innanlands og ut
186
Nú á dögunum komst Landsréttur að sömu niðurstöðu og Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður komist að í máli starfsmanns sem taldi að ferðatími á vegum vinnu sinnar, til annars áfangastaðar en hefðbundinnar starfsstöðvar í því skyni að inna af hendi störf sín að kröfu atvinnurekanda, eigi að teljast til vinnutíma.
Í málinu hafði flugvirki hjá Samgöngustofu stefnt íslenska ríkinu og sett fram þessa viðurkenningarkröfu. Þannig fór viðkomandi fram á að sá tími frá því hann yfirgaf heimili si
187
Kerfisbundið vanmat á kvennastörfum og aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi voru til umræðu á Kvennaþingi EPSU, regnhlífarsamtökum evrópskra stéttafélaga í almannaþjónustu 24. nóvember. Þingið var haldið í tilefni alþjóðlegs baráttudags gegn ofbeldi gegn konum í Róm. Sonja Ýr Þorbergsdóttir, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og Freyja Steingrímsdóttir sóttu þingið fyrir hönd BSRB
188
Starfsfólk BSRB óskar þér og þínum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári og þakkar þér kærlega samskiptin og samstarfið á árinu sem er að líða.
Skrifstofa BSRB verður lokuð á hefðbundnum frídögum yfir jól og áramót, sem og föstudaginn 27. desember, en verður annars opin eins og venjulega þess á milli
189
Streitustiginn er gagnlegt verkfæri fyrir vinnustaði sem hjálpar til við að búa til sameiginlegt orðfæri um álag og streitu á vinnustaðnum og til að greina hvort streita er til staðar og hversu alvarleg hún er.
Streitustiginn er hluti af
190
Starfsmenn í hlutastörfum eiga sama rétt og aðrir starfsmenn til að taka kaffihlé á vinnutíma. Réttindin haldast þó í hendur við starfshlutfall þannig að kaffitímarnir verða styttri hjá þeim sem eru í litlu starfshlutfalli.
Almennt er ákvæði í kjarasamningi opinberra starfsmanna þess efnis að á venjulegum vinnudegi skulu vera tveir kaffitímar, 15 mínútur og 20 mínútur, og skuli þeir teljast til vinnutíma. Þannig eru kaffitímar daglega 35 mínútur fyrir fullt starf í dagvinnu. Matartími
191
Þessa vikuna stendur yfir 10. þing Evrópskra heildarsamtaka opinberra starfsmanna, EPSU, í Dublin á Írlandi. Yfirskriftin þess er „Berjumst fyrir framtíð fyrir alla“ og eru megináherslurnar; framtíð opinberrar þjónustu, framtíð starfa á opinberum markaði og framtíð stéttarfélaga í opinbera geirunum.
Þingið, sem haldið er á fimm ára fresti, er vel sótt en þar eru nú samankomnir um 300 fulltrúar frá stéttarfélögum opinberra starfsmanna í Evrópu frá alls 44 löndum. Konur eru nú meirihlut
192
Fjallað var um stöðuna í kjaraviðræðum BSRB og aðildarfélaga bandalagsins við viðsemjendur á fundi samningseininga BSRB í morgun og rætt um næstu skref.
Á fundinum fór Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, og aðrir úr samninganefndum bandalagsins yfir það sem fjallað hefur verið um á fundum með viðsemjendum bandalagsins. Fjallað var um fundi með samninganefndum ríkisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborgar, en aðildarfélög bandalagsins semja við alla þessa aðila. S
193
Kæru félagar – Til hamingju með daginn!.
Það er mér mikill heiður að standa hér í dag, með ykkur öllum. Við stöndum hér í dag – saman – til að berjast fyrir bættum kjörum og bættum hag, og til að berjast gegn misrétti og óréttlæti, á vinnumarkaði sem og í einkalífi. Við stöndum saman hér í dag líkt og við launafólk höfum staðið saman í heila öld. Við stöndum hér til að krefjast breytinga á samfélaginu okkar.
Við vitum öll hversu mikilvæg samstaðan er launafólki. Án hennar hefðu
194
Alls sóttu 1.961 einstaklingar um starfsendurhæfingu hjá VIRK starfsendurhæfingarsjóði á síðasta ári og hefur fjöldinn aldrei verið meiri. Þá luku 1.367 starfsendurhæfingu hjá VIRK á árinu, sem einnig er metfjöldi.
VIRK starfsendurhæfingarsjóður var stofnaður af aðilum vinnumarkaðarins árið 2009 til að bregðast við þeim þrengingum sem samfélagið gekk í gegnum í kjölfar bankahrunsins. Markmiðið var að
195
Yfir 1.200 fulltrúar launafólks frá 132 löndum taka þátt í heimsþingi Alþjóðasambands verkalýðsfélaga (ITUC) sem stendur yfir þessa viku í Kaupmannahöfn. Mörg stór mál eru þar til umfjöllunar, en formaður og framkvæmdastjóri BSRB sitja þingið fyrir hönd bandalagsins.
Heildarsamtökum sem aðild eiga að ITUC hefur fj
196
Skerpt hefur verið á áherslum BSRB í nýrri stefnu bandalagsins sem unnin var á 45. þingi bandalagsins, en stefnan hefur nú verið gerð opinber. Allt starf BSRB grundvallast á þeirri stefnu sem mótuð er á þingum bandalagsins.
Stefnan er í alls 14 köflum þar sem fjallað er um almannaþjónustuna, atvinnumál og efnahags- og skattamál. Þar er einnig fjallað um heilbrigðismál, húsnæðismál, jafnrétti, menntamál og starfsumhverfi starfsfólks í almannaþjónustu
197
Stjórn NFS, Norræna verkalýðssambandsins, samþykkti á fundi sínum í gær að fela Sonju Ýr Þorbergsdóttur, formanni BSRB, formennsku í stjórninni á næsta ári.
NFS er samband bandalaga verkalýðsfélaga á Norðurlöndunum sem hefur það hlutverk að samræma starf verkalýðsfélaga í löndunum, auka samvinnu milli landa og vinna að hagsmunum launafólks. Auk BSRB eiga ASÍ og B
198
Kæru félagar,.
Þá er komið að lokum 45. þings BSRB. Þrátt fyrir stífa dagskrá hafa dagarnir liðið hratt og gleðin og vinnusemin verið allsráðandi.
Saman höfum við mótað skýra stefnu BSRB til þriggja ára, átt öfluga umræðu og unnið fjölda sterkra ályktana. Þessi vinna verður mikilvægt leiðarljós fyrir verkefnin framundan.
Við ætlum að tryggja að launafólk geti lifað af á dagvinnulaunum, stytta vinnuvikuna og berjast fyrir bættu starfsumhverfi okkar félagsmanna. Við ætlum
199
Formenn BSRB og Alþýðusambands Íslands ásamt bæjarstjóra og bæjarfulltrúum Akraneskaupstaðar tóku í dag fyrstu skóflustungurnar að íbúðakjarna Bjargs íbúðafélags á Akranesi. Til stendur að reisa 33 nýjar leiguíbúðir við Asparskóga 12-16.
Þau Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi, og bæjarfulltrúar á Akranesi hófu verkið formlega með því að taka fyrstu skóflustungurnar. Strax að því loknu hófst undirbúningsv
200
Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, tilkynnti stjórn bandalagsins í morgun að hún muni ekki gefa kost á sér til endurkjörs á þingi bandalagsins sem haldið verður um miðjan október. Hún mun gegna starfinu áfram til loka þings bandalagsins.
Elín Björg var kjörin formaður á þingi bandalagsins í október 2009 og mun því hafa gegnt embættinu í níu ár þegar hún lætur af störfum á 45. þingi BSRB. Það fer fram dagana 17. til 19. október næstkomandi.
„Verkefnin undanfarin ár hafa veri