141
Forsætisráðherra hefur skipað nefnd um úrbætur og nýtingu launatölfræðiupplýsinga eins og ákveðið var á fundum með aðilum vinnumarkaðarins í byrjun árs. Fulltrúi BSRB í nefndinni er Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri bandalagsins.
Vinna nefndarinnar er mikilvægur hlekkur í því samtali sem átt hefur sér stað milli verkalýðshreyfingarinnar, atvinnurekenda og stjórnvalda á síðustu mánuðum. Þar hefur verið lögð þung áhersla á mikilvægi þess að hafa betri launatölfræði sem hægt er að nota
142
Afturvirk hækkun á launum vegna launaþróunartryggingar getur haft áhrif á atvinnuleysisbætur og greiðslur úr fæðingarorlofssjóði samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun.
Félagar í aðildarfélögum BSRB sem starfa hjá ríkinu fengu 1,3 prósenta launahækkun afturvirkt frá 1. janúar 2017
143
Krafan um styttingu vinnutíma verður sífellt háværari í samfélaginu og fleiri eru farnir að taka undir sjónarmið BSRB um að stytta eigi vinnuvikuna í 36 stundir, án launaskerðingar.
Það er ekki tilviljun enda af sem áður var að það teljist dyggð að vinna myrkranna á milli. Ungt fólk leggur mun meira upp úr þeim lífsgæðum sem fengin eru með samverustundum með fjölskyldu og vinum
144
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og áhugamaður um heilbrigðiskerfið, verður frummælandi á opnum hádegisfundi BSRB um heilbrigðismál mánudaginn 9. október næstkomandi.
Yfirskrift fundarins
145
Um 400 íbúðir eru nú á teikniborðinu hjá Bjargi íbúðafélagi, sagði Björn Traustason, framkvæmdastjóri félagsins, á morgunverðarfundi hjá BSRB í morgun. Félagið, sem var stofnað af BSRB og ASÍ, ætlar að reisa að lágmarki um 1.150 íbúðir á næstu árum.
Með stofnun Bjargs íbúðarfélags voru BSRB og ASÍ að bregðast við viðverandi ófremdarástandi á húsnæðismarkaði. Félagið, sem er rekið án hagnaðarsjónarmiða, mun tryggja tekjulágum fjölskyldum á vinnumarkaði aðgengi að ódýru, öruggu og vöndu
146
Þær Bergrós Vala Marteinsdóttir og Amelía Ósk Hjálmarsdóttir, sjúkraliðanemar frá Verkmenntaskólanum á Akureyri (VMA) urðu hlutskarpastar þegar keppt var í hjúkrun á Íslandsmóti iðn- og verkgreina árið 2017 nýverið.
Ísandsmótið er haldið annað hvert ár og er markmiðið að vekja athygli á þeim tækifærum sem felast í námi og starfi í iðn- og verkgreinum.
Sjúkraliðanemar tóku nú þátt í þriðja skipti og kepptu sín á milli í hjúkrun. Þrjú lið sjúkraliðanema tóku þátt í keppninni. Þa
147
Um 25 þúsund Íslendingar hafa skráð sig sem líffæragjafa í gagnagrunn landlæknis en um 25 þúsund vantar til viðbótar ef vel á að vera. Hægt er að skrá sig sem líffæragjafa með einföldum hætti á vef landlæknisembættisins. . Opnað var fyrir skráningu á vef landlæknis í lok október 2014. Um 7.000 manns skráðu sig fyrir lok árs 2014, um 14.000 á árinu 2015 en einungis um 4.000 í fyrra
148
um lífeyrisréttindi félagsmanna bandalagsins án þess að ná sátt um þær breytingar. . Frumvarpið byggði á samkomulagi sem bandalög opinberra starfsmanna gerðu við ríki og sveitarfélög. Í því samkomulagi er kveðið á um að „réttindi núverandi sjóðfélaga í A
149
BSRB mótmælir harðlega þeirri ákvörðun kjararáðs að hækka laun þingmanna, ráðherra og forseta Íslands um tugi prósenta og skorar á kjararáð að endurskoða ákvörðun sína. . Launahækkun kjörinna fulltrúa er í engu samræmi við rammasamkomulag aðila vinnumarkaðarins um bætt vinnubrögð við gerð kjarasamninga. Í rammasamkomulaginu er ákvæði um sameiginlega launastefnu til ársloka 2018 sem koma átti í veg fyrir það höfrungahlaup sem einkennt hefur vinnumarkaðinn. Hækkanir kjararáðs fara l
150
Stjórnendur skurðdeildar á Sahlgrenska háskólasjúkrahúsinu í Mölndal í Svíþjóð styttu vinnutíma starfsmanna úr átta klukkustundum í sex í tilraunaskyni fyrir ári. Niðurstaðan er styttri biðtími sjúklinga og aukin vellíðan starfsmanna. Tilraunaverkefnið hefur nú verið framlengt
151
Marktækt færri börn hafa fæðst hér á landi eftir að reglum um fæðingarorlof var breytt og hámarksgreiðslur í mánuði lækkaðar verulega segir Ólöf Garðarsdóttir, prófessor á menntavísindasviði Háskóla Íslands, í samtali við Morgunblaðið í dag. . Í kjölfar hrunsins haustið 2008 voru hámarksgreiðslur foreldra í fæðingarorlofi skertar verulega og hafa þær lítið hækkað síðan. Hámarkið lækkaði í 300 þúsund krónur, en hefur nú verið hækkað í 370 þúsund krónur á mánuði
152
Þing Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) kaus nýjan formann og nýja stjórn yfir félagið síðastliðinn laugardag. Stefán Pétursson, neyðarflutningamaður hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi, er nýr formaður LSS. . BSRB óskar Stefáni til hamingju með góða kosningu og hlakkar til þess að eiga samstarf við hann á komandi árum. . BSRB þakkar jafnframt fráfarandi formanni, Sverri Birni Björnssyni, kærlega fyrir samstarfið á undanförnum árum, og ósk
153
Þing BSRB verður sett kl. 10 á morgun, miðvikudaginn 28. október, á Hótel Nordica í Reykjavík. Þingið mun standa til föstudags og fer fram þrátt fyrir óvissu um stöðu kjaraviðræðna þriggja fjölmennustu aðildarfélaga BSRB sem semja við ríkið.
Síðustu daga hafa samninganefndir SFR, SLFÍ og LL átt í viðræðum við samninganefnd ríkisins sem fram til þessa hafa ekki skilað árangri. SFR og SLFÍ hafa staðið í verkföllum síðustu misseri og að óbreyttu hefst tveggja sólarhringa allsherjar
154
Mikil umræða um stöðu atvinnumála í Evrópu og atvinnuleysi ungs fólks hefur farið fram á þingi ETUC, Evrópusambands verkalýðsfélaga, sem nú stendur yfir í París. Einnig hefur verið fjallað um mikilvægi aukinna fjárfestinga til að skapa fleiri störf um leið og réttindi og kjör launafólks verði varin og þau bætt..
Umræðan einkenndist af áhyggjum af stöðu mála í á
155
Félagsmenn BSRB fjölmenntu á baráttufund fyrir bættum kjörum, í Háskólabíói í gær og var fullt út úr dyrum og góður andi í fólki. Það voru SFR, SLFÍ og LL sem stóðu að fundinum en kjaraviðræður umræddra félaga við samninganefnd ríkisins hafa lítið þokast áfram á síðustu vikum.
Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður SLFÍ, tók fyrst til máls og fjallaði um í ræðu sinni um kjör sjúkraliða og mikilvægi þeirra í keðju heilbrigðisstarfsfólk á öllum heilbrigðisstofnunum landsins
156
staða A-deildar batnaði lítið eitt þó svo enn vanti talsvert á að jafnvægi náist milli eigna og lífeyrisskuldbindinga. Það er áhyggjuefni og sömuleiðis staða og framtíðarhorfur B-deildar,“ sagði Árni Stefán.
„Ávöxtun
157
„Við stöndum frammi fyrir alvarlegustu deilum á vinnumarkaði í áraraðir. Á síðasta ári voru kjarasamningar megin þorra launafólks framlengdir með mjög hóflegum launahækkunum. Með þeim samningi var skapað tækifæri fyrir stjórnvöld til að byggja samfélag jafnaðar, þar sem hagsmunir heildarinnar voru settir í forgrunn. En í stað þessa að nýta þetta einstaka tækifæri og leggjast á eitt með launafólki, með því að vinna sameiginlega að bættum hag almennings héldu stjórnvöld inn á braut sérha
158
„Árin eftir hrun hafa verið launafólki mjög erfið, megin byrðar efnahagshrunsins hafa verið bornar af launafólki sem hefur mátt sætta sig við hækkun nánast allra tölfræði þátta sem mælikvarðar ná yfir – nema kannski launa sinna,“ sagði Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB á ráðstefnu BSR og ASÍ í morgun.
Umfjöllunarefnið að þessu sinni var „Hlutverk stéttarfélaga í samfélaginu“. Ráðstefnan stendur nú yfir á Grand hóteli í Reykjavík og hægt er að fylgjast með henni hér á heimasíð
159
Launamunur á milli opinbera og almenna markaðarins er 17% samkvæmt kjarakönnun SFR og samanburði við VR félaga. Borin voru saman laun á milli félagsmanna í sambærilegum störfum og sýndi það sig að enn er almenni markaðurinn talsvert á undan hinum opinbera í launaþróun..
Mikill munur er enn á grunnlaunum félaganna, þar sem meðalgrunnlaun SFR félaga er rúmar 336 þúsund en meðal grunn
160
Undanfarið hafa reglulega verið sagðar fréttir af því í fjölmiðlum að gera eigi breytingar á lífeyriskerfinu og m.a. hækka lífeyristökualdur. Rétt er að taka fram að ekkert hefur verið ákveðið í þeim efnum og slíkar aðgerðir yrðu aðeins hluti af viðmeiri breytingum á lífeyriskerfi landsmanna..
Frá 2009 hefur verið unnið að breytingum á lífeyriskerfi landsins sem miðar að samræmingu