61
„Stéttarfélög munu ávallt standa vörð um þau gildi sem eru kjarninn í starfi okkar, en þau eru jöfnuður, virðing, þróun, lýðræði og friður. Einungis með því að stefna að slíkum markmiðum, í krafti sameiginlegra aðgerða og samstöðu, lifir vonin um betri heim,“ segir meðal annars í yfirlýsingu Alþjóðasamtaka verkalýðsfélaga, ITUC, í dag, 1. maí 2018..
Hér er yfirlýsingin í h
62
Starfshópur sem forsætisráðherra skipaði um málefni kjararáðs leggur til að ráðið verði lagt niður og að laun æðstu embættismanna fylgi þróun launa opinberra starfsmanna.
Starfshópurinn telur að launaákvarðanir kjararáðs hafi ítrekað skapað ósætti og leitt til óróa á vinnumarkaði. Þau viðmið sem kjararáð hafi starfað eftir hafi verið óskýr og ósamrýmanleg og því sé nauðsynlegt að breyta fyrirkomulaginu, að því er fram kemur í
63
Það nægir ekki að vinna að jafnrétti á vinnumarkaði, karlar verða að taka aukinn þátt í heimilisstörfum og umönnun barna sinna til að jafnrétti kynjanna verði að veruleika. Þetta var meðal þess sem rætt var á ráðstefnu um jafnréttismál sem fram fór í Kaupmannahöfn nýlega.
Á ráðstefnunni var fjallað um jafnréttismál út frá sjónarhorni beggja kynja og áhersla lögð á að fá fram sjónarmið karla
64
Bjarg íbúðafélag, sem er í eigu BSRB og ASÍ, mun reisa 60 íbúðir til viðbótar þær 260 sem þegar voru í undirbúningi í Reykjavík og Hafnarfirði. Breytingar á byggingarreglugerð hafa orðið þess valdandi að hægt var að fjölga íbúðum á lóðunum.
Fjallað er um málið í Morgunblaðinu í dag. Þar kemur fram að íbúðirnar verði við Móaveg í Grafa
65
Óalgengt er að þolendur kynbundinnar og kynferðislegrar áreitni og ofbeldis sem vitað er að þrífst á vinnustöðum leiti sér aðstoðar vegna slíkra mála. Auka þarf umræðu um áreitni í samfélaginu og bæta þekkingu bæði starfsmanna og yfirmanna að mati BSRB.
Gagnkvæm virðing í samskiptum á vinnustað er sjálfsagður réttur alls launafólks. Það hefur í för með sér að starfsmenn eiga að njóta skilyrðislausrar verndar fyrir kynbundinni og kynferðislegri áreitni og ofbeldi á vinnustöðum
66
Mjög algengt er að ákvæði um hvíldartíma vaktavinnufólks sem finna má í mörgum kjarasamningum séu brotin á vinnustöðum, sagði Bára Hildur Jóhannsdóttir, verkefnisstjóri mannauðsmála hjá Landspítalanum í erindi sem hún hélt á vinnufundi réttindanefndar BSRB á föstudag.
Almennt eiga starfsmenn sem vinna vaktavinnu rétt á 11 klukkustunda hvíld á milli vakta að lágmarki, þó á því séu ákveðnar undantekningar. Þá er skýrt kveðið skýrt á um rétt á lengra hléi, sambærilegu helgarhléi þeirra s
67
Norræni lýðháskólinn í Genf, Genfarskólinn, byrjar þann 30. mars og enn er ekki of seint fyrir þá sem hafa áhuga á verkalýðshreyfingunni að sækja um. Umsóknarfrestur er til 31. janúar næstkomandi.
Skólinn er ætlaður virkum félagsmönnum í stéttarfélögum og er gert ráð fyrir því að umsækjendur hafi áhuga á alþjóðamálum verkalýðshreyfingarinnar. Þá er æskilegt að umsækjendur hafi sótt fræðslustarf verkalýðshreyfingarinnar hér á landi og
68
Alþingi lögfesti rétt í þessu frumvarp fjármálaráðherra um breytingar á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Það eru vonbrigði að Alþingi hafi kosið að gera ekki þær breytingar sem BSRB kallaði eftir á frumvarpinu heldur breyta lögum um lífeyrisréttindi félagsmanna bandalagsins án þess að ná sátt um þær breytingar. . Frumvarpið byggði á samkomulagi sem bandalög opinberra starfsmanna gerðu við ríki og sveitarfélög. Í því samkomulagi er kveðið á um að „réttindi núverandi sjóðf
69
BSRB mótmælir harðlega þeirri ákvörðun kjararáðs að hækka laun þingmanna, ráðherra og forseta Íslands um tugi prósenta og skorar á kjararáð að endurskoða ákvörðun sína. . Launahækkun kjörinna fulltrúa er í engu samræmi við rammasamkomulag aðila vinnumarkaðarins um bætt vinnubrögð við gerð kjarasamninga. Í rammasamkomulaginu er ákvæði um sameiginlega launastefnu til ársloka 2018 sem koma átti í veg fyrir það höfrungahlaup sem einkennt hefur vinnumarkaðinn. Hækkanir kjararáðs fara l
70
Auglýst hefur verið eftir umsóknum frá vinnustöðum hjá ríkinu sem vilja taka þátt í tilraunaverkefni ríkisins og BSRB um styttingu vinnuvikunnar. Í auglýsingu frá velferðarráðuneytinu eru vinnustaðir um allt land hvattir til að sækja um. . Með tilraunaverkefninu er ætlunin að kanna hvort stytting vinnuvikunnar úr 40 stundum í 36 án skerðingar á launum geti leitt til gagnkvæms ávinnings fyrir launafólk og vinnuveitendur. Velja á fjóra vinnustaði til þátttöku í verkefninu. Það mun he
71
Algengt er að gerendur í eineltismálum á vinnustöðum beri því við að þeir hafi bara verið að grínast í fórnarlambi sínu, þegar þeir eru í raun að gera lítið úr eða niðurlægja viðkomandi. . Þetta hefur oft þau áhrif að sá sem fyrir eineltinu verðir á erfitt með að svara fyrir sig, enda viðtekin viðbrögð þau að eingöngu hafi verið um grín að ræða og að viðkomandi eigi ekki að vera svona viðkvæmur. . Í reglugerð sem tók gildi nýlega eru auknar skyldur settar á herðar atvin
72
Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, skrifar grein um stóru málin sem stjórnmálamönnum hefur orðið svo tíðrætt um í Fréttablaðið í dag. Greinin er einnig birt á vef Vísis.. .
Hver eru stóru málin?.
Í þeirri fullkomnu upplausn sem ríkt hefur í íslenskum stjórnmálum undanfarna daga hefur stjórnmálamönnum verið tíðrætt um þau stóru mál sem þurfi að sinna. Ekki eru
73
Ellefu aðildarfélög BSRB og Samband íslenskra sveitarfélaga undirrituðu nýjan kjarasamning að morgni laugardags 10. júní 2023. Í framhaldinu var verkfallsaðgerðum sem hófust um miðjan maí aflýst. Sækja þarf sérstaklega um verkfallsbætur vegna verkfalla á tímabilinu 15. maí - 10. júní sl. . Hægt er að sækja um verkfallsbætur hér.. .
74
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, hélt fyrirlestur í morgun á ráðstefnu norrænna starfsmannafélaga sveitarfélaga (NTR) sem bar yfirskriftina Saman vinnum við stóru sigrana. .
Í fyrirlestri sínum lagði hún áherslu á nýja nálgun við hagstjórn sem tekur mið af velsæld fólks. „Hagfræði hefur veruleg áhrif á stefnumótun og ákvarðanir stjórnvalda, á vinnumarkaði og við lagasetningu. Hagfræði er félagsvísindagrein en áherslan á stærðfræðileg rök í fræðunum leiðir
75
Aðildarfélög BSRB náðu samkomulagi um launahækkanir og kjarabætur við ríki og borg þann 30. mars. Undirritunum samninga lýkur í dag.
Samningarnir verða nú kynntir og í kjölfarið greidd um þá atkvæði. Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, segir að helsta markmiðið með samningunum, sem eru skammtímasamningar, hafi verið að verja kaupmátt þeirra félaga sem samningarnir ná til í viðtali við RÚV:.
„Aðalmarkmiðið með þessum samningum var að verja kaupmátt okkar fólks. En fljótl
76
Í dag skrifuðu evrópsk verkalýðsfélög og vinnuveitendur undir áætlun um fjarvinnu og réttinn til að aftengjast. Um lagalega bindandi samkomulag er að ræða og var það undirritað í viðurvist varaforseta Framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins..
„ Samkomulög sem þessi, milli verkalýðsfélaga og vinnuveitenda, eru grundvallaratriði í lýðræðissamfélagi. Þetta samkomulag sýnir fram á sameiginlegan metnað til að takast á við sumar af stærstu áskorunum sem
77
Það eru grundvallarmannréttindi að búa við félagslegt öryggi og mannlega reisn. Við eigum öll rétt á viðunandi lífsafkomu og því að njóta líkamlegrar og andlegrar heilsu. Til þess þurfum við meðal annars að hafa aðgang að mat, fatnaði, húsaskjóli og heilbrigðisþjónustu.
Sláandi niðurstöður könnunar sem Varða, rannsóknarstofnun vinnumarkaðarins, gerði fyrir Öryrkjabandalag Íslands á fátækt meðal fatlaðs fólks sýna okkur að við sem samfélag þurfum að gera miklu betur.
Í niðurstö
78
Í heimi þar sem tæknibreytingar eru örar verður þörfin á að fólk uppfæri tölvufærni sína og tæknilæsi sífellt fyrirferðameiri. Aðkallandi er að mæta fólki á vinnumarkaði hvað varðar færniþróun á þessu sviði. Í dag er tölvufærni og tæknilæsi, eða stafræn hæfni, einn af lykilhæfniþáttum sem einstaklingur þarf að búa yfir til að sýna fulla virkni á vinnumarkaði, í námi og í samfélaginu almennt.
Nú í haust verða haldin sex sjálfstæð námskeið sem hjálpa félagsmönnum aðildarfélaga BSRB að h
79
Það er öllum nauðsynlegt að slaka á endrum og eins, en endurheimt er ekki síður mikilvæg innan vinnudagsins og hún er utan hans. Það getur haft í för með sér alvarlega afleiðingar, bæði andlega og líkamlega, ef þessari endurheimt er ekki náð.
BSRB hefur lagt ríka áherslu á endurheimt utan vinnudagsins, til dæmis með því að koma í veg fyrir vinnutengd símtöl til starfsfólks utan vinnutíma eða að gerð sé krafa um að þau vakti tölvupóst sinn þegar heim er komið. Þessi endurheimt er jafnf
80
Heildarsamtök launafólks, ASÍ, BSRB og BHM, hafa skipað starfshóp sem falið er að leggja mat á efnahagsleg áhrif COVID-kreppunnar með áherslu á áhrifin á vinnumarkaðinn.
Hópurinn mun gera tillögur um aðgerðir til að fyrirbyggja langtímaskaða af efnahagskreppunni og tryggja öfluga viðspyrnu þegar heimsfaraldurinn líður undir lok. Hópnum er ætlað að horfa sérstaklega til viðkvæmra og jaðarsettra hópa og fjalla um að hvaða leyti aðgerðir geta haft áhrif á jöfnuð og félagslegt réttlæti. H